04/20/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/20/2026 08:59
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, bauð ungmennum víðs vegar af landinu til vinnustofu þar sem markmiðið var að fá þau til að móta með ráðherra þá reglugerð sem fyrirhugað er að setja um símafrí í skólum og aldurstakmark á samfélagsmiðlum. "Ekkert um ykkur án ykkar," sagði ráðherra.
Öflug og samhent hópvinna fór fram þar sem ýmsar hliðar síma- og samfélagsmiðlanotkunar voru rökræddar fram og til baka. Hópar skráðu niðurstöður sínar á veggspjöld og að því loknu úthlutaði hver og einn þátttakandi vinnustofunnar atkvæðum sínum til þeirra atriða sem talin voru mikilvægust.
Þegar upp var staðið töldu börnin að ekki hefði gengið vel að framfylgja reglum um símafrí, þær væru ósamræmdar milli skóla og það þyrfti að laga. Einnig töldu þau afar mikilvægt að mæta símafríi skólanna með auknu aðgengi nemenda að tómstundum og annarri afþreyingu. Algjört grundvallaratriði í þeirra huga var að fullorðnir gengju á undan með góðu fordæmi og kennararnir sjálfir slepptu símanum í kennslustofunni á meðan á skólatíma stæði.
Einnig voru þau öll einróma um að hækkun aldurstakmarks að samfélagsmiðlum verndaði sjálfsmynd þeirra um leið og það drægi úr aðgengi þeirra að skaðlegu efni á netinu.
Vinnustofan fékk góðan gest þegar Jón Pétur Zimsen, alþingismaður og fyrrverandi skólastjóri, ávarpaði þátttakendur vinnustofunnar.
Mennta- og barnamálaráðherra mun í kjölfarið koma með reglugerð um símafrí í grunnskólum. Einnig mun ráðherra fara að vilja þeirra hvað lýtur að hækkun aldurstakmarks að samfélagsmiðlum.
Ráðherra þakkar öllum þeim sem komu að vinnustofunni með einum eða öðrum hætti fyrir framlag sitt í þágu framtíðarinnar. "Símar og samfélagsmiðlar eiga ekki að ræna æskunni frá unga fólkinu okkar," segir Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra.