06/05/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/05/2026 11:22
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sótti árlegan ráðherrafund Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í París dagana 3.-4. júní. Fundurinn var haldinn undir formennsku Finnlands og fjallaði að þessu sinni um atvinnustefnu og hvernig skapa megi umhverfi sem styður við fjárfestingu, framleiðni og aukna hagsæld.
Í ræðu sinni lagði ráðherra áherslu á mikilvægi hins alþjóðlega efnahagskerfis þar sem skýrar reglur gilda og byggt var upp eftir síðari heimsstyrjöld. Ísland hafi notið mikils ávinnings af þessu kerfi.
"Þær undirstöður sem ríki á borð við Bretland og Bandaríkin lögðu eftir síðari heimstyrjöld sköpuðu umhverfi þar sem viðskipti, fjárfestingar og nýsköpun gátu blómstrað þvert á landamæri. Þetta kerfi hefur verið einstök uppspretta hagsældar, ekki síst fyrir smærri samfélög á borð við Ísland," sagði ráðherra í ræðu sinni.
Hann sagði eitt mikilvægasta framlag stjórnvalda til að stuðla að fjárfestingu væri að skapa stöðugleika, tryggja fyrirsjáanlegt regluverk og forðast að auka óvissu í rekstrarumhverfi fyrirtækja. Þá vék ráðherra að því að auknar áherslur á efnahagslegt öryggi og viðnámsþrótt væru skiljanlegar í breyttum heimi. Mikilvægt væri þó að þær ráðstafanir sem gripið væri til væru eins hagfelldar fyrir viðskipti og fjárfestingu og kostur væri.
Hann lagði sérstaka áherslu á stöðu smærri hagkerfa og benti á að reglur sem væru hannaðar fyrir ríki með tugi milljóna íbúa gætu haft óhóflega mikinn kostnað í för með sér fyrir lönd á borð við Ísland og þau fyrirtæki sem þar starfa. Til að skapa raunverulega hagstætt umhverfi fyrir fjárfestingu þyrfti ekki aðeins góðan ásetning heldur einnig meðalhóf, einfaldleika og ríka áherslu á framkvæmd reglna.
Í tengslum við fundinn átti ráðherra tvíhliða fundi með fjármála- og efnahagsráðherrum Slóvakíu, Grikklands, Belgíu og Frakklands. Þá fundaði hann einnig með sérfræðingum OECD um þróun alþjóðahagkerfisins, opinber fjármál og helstu áskoranir í efnahagsmálum á komandi árum.