03/12/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/12/2026 09:18
Ein megináhersla mennta- og barnamálaráðuneytisins og menntastefnu stjórnvalda er að styðja við menntun og móttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn meðal annars í gegnum verkefnið MEMM (menntun, móttaka, menning). Hluti þess snýst um að ná betur utan um kennslu íslensku sem annars tungumáls sem er í anda áherslu ríkisstjórnarinnar um að efla íslenskukennslu fyrir innflytjendur.
Norræna velferðarmiðstöðin (Nordic Welfare Centre) hefur gefið út nýja skýrslu um hlutverk tungumála í aðlögun og inngildingu barna og ungmenna með innflytjendabakgrunn í norrænum skólum. Skýrslan byggir á norrænni rannsóknaryfirlitsgreiningu og umræðum sérfræðinga á málþinginu The role of language for inclusion sem haldið var í október 2025 en ákvörðun um að fara í slíka greiningavinnu var tekin í kjölfar fundar norrænu ráðherranefndarinnar í Hörpu þegar Ísland gegndi formennsku.
Niðurstöðurnar skýrslunnar sýna að góð hæfni í tungumáli samfélagsins og skólans er ein af mikilvægum undirstöðum náms, virkrar þátttöku og félagslegrar inngildingar. Til þess að ná árangri þarf koma til móts við fjölbreyttar og ólíkar þarfir nemenda, líta á tungumál þeirra sem auðlind ásamt því að tryggja aðgengi þeirra og þátttöku þar sem hugað er að kerfislægum þáttum eins og umgjörð, skipulagi, faglegri leiðsögn og hæfni kennara.
Málþingið var skipulagt af Norrænu velferðarmiðstöðinni í samstarfi við Norræna tengslanetið um menntun nýkominna nemenda, þar sem fulltrúar ráðuneyta og stofnana á Norðurlöndum (þar á meðal frá Íslandi) koma að sameiginlegri þekkingaruppbyggingu og miðlun reynslu.
Upptaka frá málþinginu og skýrslan eru aðgengileg á vef Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar.