Government Offices of Iceland

02/04/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/04/2026 08:20

Öflugt frístundastarf gegn ofbeldi meðal barna

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag samning um að styðja við og auka aðgengi barna og ungmenna á aldrinum 16-25 ára að skipulögðu frístunda- og félagsstarfi í Breiðholti.

Samningurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna.

Rannsóknir sýna að skipulagt frístundastarf eykur vellíðan ungmenna, styrkir félagsleg tengsl og dregur úr líkum á neikvæðum afleiðingum eins og einangrun og vanlíðan. Starfið veitir ungmennum öruggan vettvang til að hitta jafnaldra og kynnast uppbyggilegum tómstundum undir handleiðslu fagfólks.

"Ofbeldi meðal barna er ekki eitthvað sem við getum búið við sem samfélag. Það þarf að taka á vandanum af festu og á víðum grunni með öflugu samstarfi og samfélagsátaki. Við viljum styðja við ungmenni í viðkvæmri stöðu og öflugt félags- og frístundastarf er lykilvarða á þeirra vegferð," segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.

"Fjármagn í fræðslu og forvarnir getur haft afgerandi áhrif á líf ungmenna. Það er skylda okkar sem samfélags að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir að börn lendi á refilstigu og þessi samningur er mikilvægur í því ljósi. Frístundir og öflugt félagsstarf er meðal þess sem við getum gert til að tryggja að öll tilheyri," segir Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri.

Skipulagt ungmennastarf hefur verið starfrækt tvisvar í viku í Breiðholti, á fimmtudögum og sunnudögum, og að jafnaði hafa um 45-86 ungmenni mætt á hverja opnun. Aðsókn í ungmennastarfið dróst saman eftir að loka þurfti húsnæðinu í félagsmiðstöðinni Hundrað og ellefu í mars 2025. Á meðan leitað var að hentugu húsnæði var starfsemin tímabundið til húsa í félagsmiðstöð velferðarsviðs í Gerðubergi. Nú er starfsemin komin í hentugt húsnæði að Völvufelli 11.

Hlutverk styrkþega er að

  • auka aðgengi barna og ungmenna að skipulögðu frístunda- og félagsstarfi og veita þeim stuðning og leiðsögn, m
  • tryggja að ungmennastarf fari fram a.m.k. tvisvar í viku,
  • kynna starfsemina í samstarfi við Fjölbrautarskólann í Breiðholti og Suðurmiðstöð,
  • vera í samráði og samvinnu við þá lykilaðila sem sinna þjónustu við börn og ungmenni,
  • vísa málum í viðeigandi úrræði eftir þörfum, þ.m.t. farsældarþjónustu,
  • veita starfsfólki fræðslu um farsældarþjónustu.

Í samningnum eru skilgreindir mælikvarðar til að fylgjast með árangri og framgangi verkefnisins. Fylgst verður með aðgengi og aðsókn, samstarfi og tengingum og ánægju og áhrifum af verkefninu.

Styrkurinn nemur 8.500.000 kr. og gildir út árið 2026.

Aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna er ætlað að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi.

Government Offices of Iceland published this content on February 04, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on February 04, 2026 at 14:20 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]