Reykjavik University

10/26/2026 | Press release | Distributed by Public on 10/26/2026 10:54

Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir hlaut hæsta styrk

26. október 2026

Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, hlaut hæsta styrkinn í úthlutun dómsmálaráðuneytisins til 11 verkefna á sviði jafnréttismála. Heildarfjárhæð styrkjanna fyrir verkefnin 11 eru 10 milljónir króna.

Styrkurinn sem Svala hlaut er að fjárhæð 1,8 milljónir króna og verður notaður til að halda ráðstefnu og vinnustofu á vegum HR um mansal í kynferðislegum tilgangi.

Samkvæmt Svölu er markmiðið með ráðstefnu og vinnustofu um mansal í kynferðislegum tilgangi að leggja stjórnvöldum lið í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og mansali með fræðslu, miðlun þekkingar, eflingu faglegs samstarfs og vitundarvakningu.

Konur og stúlkur mikill meirihluti þolenda

"Áherslan er á mansal í kynferðislegum tilgangi, þar sem konur og stúlkur eru mikill meirihluti þolenda á heimsvísu. Viðburðir af þessu tagi styðja jafnframt við aðgerðir stjórnvalda gegn kynbundnu ofbeldi og mansali, þar á meðal Aðgerðaáætlun gegn mansali fyrir árin 2026-2030, og Öruggara Ísland,stefnu- og aðgerðaskjal dómsmálaráðherra gegn skipulagðri brotastarfsemi frá því í janúar 2026," segir Svala.

Svala bætir því við að með styrknum gefist kostur á að fá erlenda sérfræðinga til landsins, sem geti miðlað þekkingu sinni og reynslu af rannsókn, saksókn og alþjóðlegri samvinnu vegna mansals í kynferðislegum tilgangi. "Samhliða munu sérfræðingar á sviðinu innanlands draga upp mynd af íslenskum veruleika og þeim áskorunum sem íslensk stjórnvöld standa frammi fyrir," segir hún.

Ráðstefnan verður öllum opin þannig að sem flestar fag- og starfsstéttir, sem hafa snertiflöt við mansal, eigi kost á að sækja hana. Vinnustofan verður sniðin að fagfólki sem veitir þolendum þjónustu, aðstoð eða stuðning og starfsmönnum réttarvörslukerfisins sem starfa á þessu sviði.

Hlaut styrk úr sama sjóði í fyrra

Svala hlaut jafnframt styrk úr sama sjóði í fyrra til að halda ráðstefnu og vinnustofu um kyrkingartak, sem er ein grófasta birtingarmynd kynbundins ofbeldis. Ráðstefnan og vinnustofan fóru fram í maí á þessu ári.

Ráðstefnan var öllum opin, en vinnustofan var sérstaklega sniðin að starfsmönnum réttarvörslukerfisins og fagfólki sem sinnir aðstoð, stuðningi eða ráðgjöf til þolenda. Þátttakendur voru tæplega 600 manns sem ýmist mættu á staðinn eða fylgdust með í streymi og 70 manns sóttu vinnustofuna.

Reykjavik University published this content on October 26, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on October 26, 2026 at 16:54 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]