04/28/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/28/2026 08:52
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, átti fund með Douglas G. Perry, flotaforingja og yfirmanni herstjórnarmiðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk. Þetta er fyrsta heimsókn hans til landsins eftir að öll Norðurlöndin voru færð á ábyrgðarsvæði herstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk í byrjun desember 2025.
Í heimsókninni var lögð sérstök áhersla á árverknisaðgerð NATO, Arctic Sentry, sem miðar að aukinni samhæfingu, eftirliti og viðbúnaði á norðurslóðum og á Norður-Atlantshafi. Í því samhengi var áréttað að Ísland gegnir lykilhlutverki sem miðpunktur í GIUK-hliðinu (Grænland-Ísland-Bretland), einu mikilvægasta svæði bandalagsins fyrir eftirlit og varnir.
"Heimsókn Douglas G. Perry undirstrikar mikilvægi Íslands í varnarsamstarfi á Norður-Atlantshafi. Arctic Sentry styrkir sameiginlegt öryggi, viðbúnað og fælingarmátt Atlantshafsbandalagsins, og samstarfið skilar gagnkvæmum ávinningi fyrir Ísland og bandalagsríki," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.
Douglas G. Perry nýtti einnig heimsóknina til að kynna sér öryggissvæðið í Keflavík en framlag Íslands felst meðal annars í að tryggja aðstöðu og innviði sem styðja við stöðugt eftirlit, viðveru og viðbragðsgetu bandalagsins. Starfsemin á öryggissvæðinu styrkir stöðu Íslands í sameiginlegu varnarkerfi NATO.
"Ísland gegnir lykilstöðu í miðju GIUK-hliðsins og hefur verið mikilvægt bandalagsríki frá stofnun Atlantshafsbandalagsins. Ég átti gott og uppbyggilegt samtal við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og starfsfólk utanríkisráðuneytisins um nýsamþykkta öryggis- og varnarmálastefnu Íslands og um eflingu samstarfs okkar innan nýrrar árverknisaðgerðar NATO, Arctic Sentry. Framlag Íslands til bandalagsins er einstakt og styður við fælingarmátt og varnir á norðurslóðum og tryggir öryggi mikilvægra samgönguleiða yfir Atlantshafið," segir Douglas G. Perry, flotaforingi og yfirmaður herstjórnarmiðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk.
Herstjórnarmiðstöðin í Norfolk (Joint Force Command Norfolk - JFC Norfolk) er aðgerðastjórn bandalagsins fyrir Norður-Atlantshaf og norðurslóðir. Hún var stofnuð árið 2019 og er staðsett í Norfolk í Virginíu. Stjórnin heyrir beint undir æðsta herstjórnanda bandalagsins í Evrópu (Supreme Allied Commander Europe - SACEUR) og leggur sitt af mörkum til að efla fælingar- og varnargetu NATO.
Eitt helsta hlutverk hennar er að tryggja öryggi lykilsamgönguleiða yfir Atlantshafið. Frá desember 2025 nær ábyrgðarsvæði JFC Norfolk einnig til Norðurlandanna Danmerkur, Finnlands og Svíþjóðar, auk þeirra bandalagsríkja sem fyrir voru innan svæðisins, þ.e. Íslands, Noregs og Bretlands. Sú breyting endurspeglar aukið hernaðarlegt og pólitískt vægi svæðisins, þróun öryggisumhverfisins og áframhaldandi skuldbindingu NATO til að tryggja öryggi á norðurslóðum og á Norður-Atlantshafi.