07/16/2026 | Press release | Distributed by Public on 07/16/2026 06:25
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum (RED II). Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum, nr. 30/2008, raforkulögum nr. 65/2003 og lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi nr. 40/2013. Breytingunum er ætlað að tryggja fullnægjandi lagastoð fyrir innleiðingu tilskipunarinnar og nánari útfærslu í reglugerðum.
Frumvarpið felur meðal annars í sér breytingar á lögum um upprunaábyrgðir þar sem gildissvið þeirra er útvíkkað þannig að þær geti ekki aðeins tekið til raforku heldur einnig annarrar orku, svo sem hitunar, kælingar og vetnis. Upprunaábyrgðir eiga að sýna kaupanda að tiltekið magn orku hafi verið framleitt með endurnýjanlegum orkugjöfum og heimilt er að yfirfæra þær milli handhafa. Þá er lögð áhersla á að forðast tvítalningu og tvöfalda birtingu upprunaábyrgða.
Jafnframt eru lagðar til breytingar á raforkulögum þar sem meðal annars er lagt til að lögfesta ný hugtök á borð við jafningjaviðskipti, orkusamfélög og virka notendur. Með því er lagður grunnur að því að einstaklingar, lítil og meðalstór fyrirtæki og sveitarfélög geti framleitt, geymt, neytt og selt endurnýjanlega raforku, bæði sjálfstætt og í samlagi við aðra. Þá er ráðherra veitt heimild til að kveða nánar á um tæknileg skilyrði tenginga, einfaldað tilkynningarferli vegna smærri framleiðslueininga og staðlaða gjaldskrárumgjörð í reglugerð.
Frumvarpið felur einnig í sér umfangsmikla endurskoðun laga um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi til samræmis við RED II. Lögin eru uppfærð og gildissvið þeirra rýmkað þannig að þau taki, auk gildandi reglna um hlutdeild endurnýjanlegs eldsneytis, einnig til sjálfbærniviðmiða, samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda, rekjanleika og skráningar upplýsinga um eldsneyti. Þá er kveðið á um skyldu eldsneytisbirgja og rekstraraðila til að skrá viðeigandi upplýsingar í gagnagrunn Evrópusambandsins. Markmið slíkrar skráningar er að tryggja gagnsæi og rekjanleika, auðvelda eftirlit og draga úr hættu á að sama magn eldsneytis sé talið oftar en einu sinni. Þá er jafnframt skýrð ábyrgð þeirra aðila sem koma að gögnum, upplýsingum, rekjanleika og skráningu.
Breytingarnar fela ekki í sér sjálfstæða hækkun á lágmarkshlutdeild endurnýjanlegs eldsneytis eða nýja íblöndunarskyldu umfram það sem leiðir af lögunum og stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra. Þær miða fyrst og fremst að því að skýra hvaða skilyrði eldsneyti þarf að uppfylla til að teljast til markmiða eða skyldna samkvæmt lögunum og tryggja skýrari lagaumgjörð um innleiðingu tilskipunarinnar hér á landi.
Athygli er vakin á að umsagnarfrestur vegna frumvarpsins í Samráðsgátt er til og með 14. ágúst 2026.