03/10/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/10/2026 08:18
Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna þróunarsamvinnuverkefna félagasamtaka og kynningar-og fræðsluverkefna sem veittir eru á grundvelli reglna um styrkveitingar ráðuneytisins til félagasamtaka og fyrirtækja í þróunarsamvinnu nr. 1035/2020.
Félagasamtök geta sótt um fjórar tegundir styrkja:
a. Nýliðaverkefni í þróunarsamvinnu
b. Skammtíma þróunarsamvinnuverkefni
c. Langtíma þróunarsamvinnuverkefni
e. Kynningar- og fræðsluverkefni
Allt að 90 milljónir eru til úthlutunar til nýrra verkefna, þar af allt að 20 milljónir til kynningar- og fræðsluverkefna.
Tekið er við umsóknum félagasamtaka til og með 21. apríl 2026.
Markmið með styrkveitingum til félagasamtaka á Íslandi er að hvetja til aukinnar þátttöku þeirra í þróunarsamvinnu og efla reynslu og þekkingu um þróunarsamvinnu á Íslandi. Þá er ætlunin að breikka samstarf um framgang heimsmarkmiðanna um að draga úr fátækt og styðja við sjálfbæran vöxt í efnaminni ríkjum. Samkvæmt stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024-2028 er einnig sérstök áhersla lögð á mannréttindi, jafnrétti kynjanna og umhverfis- og loftlagsmál.
Veittir verða styrkir til þróunarsamvinnuverkefnasem koma til framkvæmda í lágtekjuríkjum og lágmeðaltekjuríkjumsbr. lista Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD DAC) yfir viðtakendur opinberrar þróunaraðstoðar. Sérstök áhersla er lögð á verkefni og samstarf í tvíhliða samstarfslöndum Íslands, þ.e. Malaví, Síerra Leóne og Úganda. Styrkir til kynningar- og fræðsluverkefna skulu koma til framkvæmda á Íslandi og hafa skýr markmið um að auka þekkingu og skilning á alþjóðlegri þróunarsamvinnu og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Við mat á umsóknum verður stuðst við viðeigandi reglur nr. 1035/2020, verklagsreglur um styrki til þróunarsamvinnuverkefnaog tiltekin gæðaviðmið sem er að finna á vef utanríkisráðuneytisins.
Til að teljast styrkhæf þurfa samtök að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Umsækjendur þurfa að uppfylla kröfur Ríkisendurskoðunarum meðferð og vörslu fjármuna á sviði þróunarsamvinnu.
Styrkupphæð verkefna getur numið allt að 80% af heildarkostnaði verkefnis og skulu samtökin leggja til mótframlag sem nemur a.m.k. 20% af heildarkostnaði verkefnis. Opið er fyrir umsóknir til þróunarsamvinnuverkefna, nýliðaverkefna og kynningar- og fræðsluverkefna. Heimilt er að veita styrk til sama þróunarsamvinnuverkefnis í allt að fjögur ár, með fyrirvara um fjárheimildir fjárlaga hvers árs. Styrkir til skammtíma þróunarsamvinnuverkefna eru veittir til eins árs. Nýliðastyrkir eru ætlaðir félagasamtökum sem ekki hafa hlotið styrk áður frá ráðuneytinu. Geta þeir hæst numið 4 m.kr. og eru veittir til eins árs. Styrkir til kynningar- og fræðsluverkefna eru veittir til afmarkaðra og tímabundinna verkefna, ekki lengur en til eins árs í senn og geta hæst numið 4 m.kr.
Vísað er í reglur utanríkisráðuneytisins um styrkveitingar utanríkisráðuneytisins til félagasamtaka og fyrirtækja í þróunarsamvinnu nr. 1035/2020 og verklagsreglur vegna styrkja til þróunarsamvinnuverkefna og aðrar leiðbeiningar sem eru að finna á vef utanríkisráðuneytisins.
Senda skal umsókn og fylgiskjöl til utanríkisráðuneytisins á netfangið [email protected]. Nota skal umsóknareyðublöð sem finna má á vef ráðuneytisins. Í umsókn skal umsækjandi lýsa með greinargóðum hætti markmiðum verkefnis sem liggur til grundvallar umsókn, áætlun um framkvæmd þess og tíma- og kostnaðaráætlun. Þá skal koma fram mat á áhrifum verkefnisins. Njóti umsækjandi annarra styrkja eða framlaga vegna verkefnisins skal gera grein fyrir slíkum framlögum eða styrkjum.
Úthlutun styrkja fer eftir þeim skilmálum sem fram koma í reglum ráðuneytisins og leiðbeiningum Ríkisendurskoðunar. Einungis umsóknir sem uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilmála verða teknar til greina. Um styrkveitingar til verkefna félagasamtaka í málaflokknum gilda lög um opinber fjármál nr. 123/2015 og reglugerð nr. 642/2018 um styrkveitingar ráðherra.
Utanríkisráðherra úthlutar styrkjum að fengnu áliti þriggja manna matshóps.
Opið er fyrir umsóknir um styrki til þróunarsamvinnuverkefna í sex vikur, frá 10. mars til og með 21. apríl 2026.
Umsóknir skulu berast beint til ráðuneytisins á [email protected].
Leiðbeiningar, eyðublöð og nánari upplýsingar varðandi umsóknir er að finna á www.utn.is/felagasamtok.
Áætlað er að niðurstöður úthlutunar liggi fyrir í júní 2026.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið [email protected].