06/25/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/25/2026 06:52
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) óskaði í morgun eftir tilboðum í jarðvinnuframkvæmdir á nýju öryggisfangelsi að Stóra Hrauni í Árborg. Upplýsingar um tilboðið er hægt að nálgast hér.
Nýtt öryggisfangelsi rís að Stóra Hrauni
Verkið felur meðal annars í sér aðstöðusköpun, uppsetningu vinnubúða, vegagerð, lagningu veitna og rafstrengja og jarðvinnu í fyrsta áfanga.
Margvíslegar aðgerðir í fangelsismálum
Öryggisfangelsið að Stóra Hrauni verður það fyrsta sinnar tegundar og þegar framkvæmdum er lokið verða þar rými fyrir 128 afplánunarfanga. Framkvæmdinni er skipt í tvo áfanga og áætlaður kostnaður við þann fyrri er 17,8 milljarðar. Þar verður lögð áhersla á almenn fangarými sem rúma 56 fanga, skólabyggingu, eina vinnustofu, vöruhús og hliðbyggingu.
Í seinni áfanganum verður öryggisdeild fyrir 16 fanga, fyrirmyndardeild fyrir 56 fanga, önnur vinnustofa, starfsmannahús og bílastæði fyrir starfsmenn.