05/20/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/20/2026 07:26
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, Finnbjörn Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) hafa ákveðið að hefja þríhliða samtal ríkisins, ASÍ og SA með það að markmiði að forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði haldi haustið 2026. Leitað verði leiða til að hemja verðbólgu og unnið að greiningum sem legið geta til grundvallar við frekara mat á stöðunni.
Skipaður hefur verið stýrihópur með fulltrúum forsætisráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins og þrír undirhópar. BSRB, BHM, KÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga eiga fulltrúa í tveimur hópanna.
Fyrsti undirhópurinn vinnur að greiningu á áhrifum vaxta, verðbólgu og verðtryggingar á mismunandi samfélagshópa, annar undirhópurinn vinnur að greiningu á valkostum til að draga úr sjálfvirkum verðlagsbreytingum og þriðji undirhópurinn vinnur að greiningu á leiðum til að styrkja launatölfræði.
Einnig mun stýrihópurinn leita mats á áhrifum stríðsins við Persaflóa á verðlagsþróun hér á landi. Stýrihópurinn hefur yfirumsjón með vinnunni og staða greininga verður kynnt á fundum þjóðhagsráðs í júní og september.
Vinna hópanna er að hefjast og mun ljúka í byrjun september.