09/24/2026 | News release | Distributed by Public on 09/24/2026 04:12
Gervigreindin hefur ekki siðferðiskennd, tekur ekki ábyrgð né býr yfir innsæi eða tilfinningum. Það er okkar að skilja og virða mennskuna og mikilvægi hennar og átta okkur á því að gervigreindin kemur aldrei í stað þessara þátta, sagði Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi og sérfræðingur hjá HA, í fyrirlestri um kosti og galla gervigreindarinnar. Fyrsta opna húsið á þessu hausti á vegum Góðvina Háskólans á Akureyri var haldið 21. september og var umfjöllunarefnið gervigreind og manneskjan. Um fimmtíu gestir sóttu fyrirlesturinn.
Helena sagði frá því að Háskólinn á Akureyri hefði verið fyrsti háskóli landsins til þess að búa til eigin stefnu um notkun gervigreindar og kom hún inn á þau áhrif sem gervigreindin hefur þegar haft á nám og kennslu í skólanum. Hún rifjaði upp þegar hún var stúdent við Kennaradeild skólans og var að búa til vefsíðu. Lærdómurinn fólst ekki síður í ferlinu við að gera síðuna heldur en útkomunni. Nú geti hún gert vefsíðuna á örstuttri stund með aðstoð gervigreindar en lærdómsferlið sé hins vegar ekkert.
Helena benti á hvernig gervigreind gæti auðveldað okkur ýmis verk í daglega lífinu. Hún getur sett saman matseðil vikunnar eða búið til æfingaprógram við liðskipti svo eitthvað sé nefnt. Hún ítrekaði að gervigreindin sé einungis eitt stórt spálíkan og komi ekki í stað manneskjunnar. Gervigreindi geti spáð fyrir um veður og efnahag en hún geti hvorki spáð fyrir um lífið né náttúruna.
Opið hús er fyrirlestraröð og er samstarfsverkefni Góðvina háskólans, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár- Akureyrarbær. Næsta opna hús verður 5. október næstkomandi og verður dagskráin kynnt síðar.
Hægt er að sjá alla viðburði á vegum háskólans með því að smella hér.
Viðburðir Góðvina eru auglýstir þar og einnig á facebook síðu Góðvina.