Government Offices of Iceland

07/17/2026 | Press release | Distributed by Public on 07/17/2026 04:50

Framkvæmdastjórn ESB féllst á rök Íslands: Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) og íslensk stjórnvöld hafa lýst sameiginlegum vilja til að framlengja sérlausn Íslands vegna millilandaflugs, innan viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS), um 3 ár eða til ársins 2030. Tilkynningin kemur í kjölfar þess að framkvæmdastjórn ESB birti tillögur sínar um endurskoðun ETS kerfisins sem nú ganga til aðildarríkjanna og Evrópuþingsins.

"Þessi niðurstaða er afrakstur víðtækrar hagsmunagæslu íslenskra stjórnvalda og staðfestir enn og aftur að innan Evrópusambandsins er vilji til að taka tillit til sérstakra aðstæðna þar sem þær eru til staðar," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Í núgildandi ETS-löggjöf hefur flug til og frá EES-svæðinu verið undanskilið ETS-kerfinu. Þetta hefur skapað samkeppnisskekkju fyrir tengiflug milli Evrópu og Norður-Ameríku um Keflavíkurflugvöll, samanborið við samkeppnisaðila á meginlandi Evrópu. Var þetta ein meginforsendan fyrir sérlausn Íslands. Samkvæmt tillögum framkvæmdastjórnarinnar yrði staðan óbreytt varðandi flug til Norður-Ameríku.

"Ríkisstjórnin hefur lagt kapp á að verja samkeppnishæfni Íslands sem tengiflugsmiðstöðvar. Þetta er gríðarlegt hagsmunamál, ekki bara fyrir ferðaþjónustuna heldur fyrir þjóðarbúið í heild," segir Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. "Með þessu drögum við úr óvissu og sendum skýr skilaboð um að horfa verði til ólíkra landfræðilega aðstæðna ríkja sem taka þátt í ETS-kerfinu. Við munum áfram beita okkur af fullum þunga fyrir sanngjörnum leikreglum sem skila raunverulegum loftslagsávinningi."

Íslensk stjórnvöld sömdu um tímabundna sérlausn við upptöku reglnanna í EES-samninginn árið 2023. Ísland hefur því á grundvelli hennar getað bætt upp þessa samkeppnisskekkju. Sérlausnin átti að óbreyttu að falla úr gildi í lok árs.

Framkvæmdastjórn ESB hefur einnig lýst yfir vilja til áframhaldandi stuðnings vegna notkun sjálfbærs flugvélaeldsneytis (SAF), en Ísland hefur sérlausn sem veitir flugrekendum rétt á 100% endurgreiðslu á verðmuninum á SAF og hefðbundnu flugvélaeldsneyti til 2030. Ný tillaga framkvæmdastjórnar ESB gerir þá ráð fyrir að unnt sé að fá endurgreiddan verðmun á SAF og venjulegu flugvélaeldsneyti einnig vegna flugs út af EES-svæðinu, svo sem til Bandaríkjanna.

Niðurstaðan um framlengingu sérlausnar Íslands er afrakstur viðamikillar hagsmunagæslu íslenskra stjórnvalda með virkri aðkomu ráðherra, sérfræðinga og sendiráðs Íslands í Brussel í góðu samstarfi við haghafa. Formleg framlenging verður gerð með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar en á þessari stundu liggur ekki fyrir hvenær gengið verður frá henni.

Stjórnvöld munu nú greina nánar tillögur framkvæmdastjórnar ESB. Þær snerta einnig aðra geira, svo sem sjóflutninga og iðnað.

Government Offices of Iceland published this content on July 17, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on July 17, 2026 at 10:50 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]