Government Offices of Iceland

05/15/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/15/2026 09:55

Íbúakosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps úrskurðaðar ógildar

Innviðaráðuneytið hefur ógilt íbúakosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sem fóru fram 14.-28. mars sl. með úrskurði sem kveðinn var upp fyrr í dag, 15. maí.

Það er niðurstaða ráðuneytisins að ágalli hafi verið á framkvæmd íbúakosninganna í Árneshreppi þar sem ekki var tryggt að kjósendur gætu greitt atkvæði á áður auglýstum opnunartíma. Kjósendur verði að geta treyst því að kjörstaðir séu að jafnaði opnir á auglýstum opnunartíma. Ekki var talið að unnt væri að útiloka að hið takmarkaða aðgengi að kjörstað hafi dregið úr kosningaþátttöku í Árneshreppi. Það er mat ráðuneytisins að um verulegan ágalla sé að ræða sem valdi ógildingu íbúakosninganna.

Kosið í tvennu lagi 16. maí

Innviðaráðuneytinu barst kæra vegna íbúakosningarinnar í apríl innan lögmælts kærufrests. Meðan kæran var til meðferðar í ráðuneytinu var ekki unnt að staðfesta sameiningu sveitarfélaganna. Þá rann einnig út framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga og kosning hófst formlega samkvæmt kosningalögum. Það þýðir að ljóst hefur verið um nokkurt skeið að kosningar færu fram í hvoru sveitarfélagi fyrir sig á morgun 16. maí.

Reglugerð kveður á um nýja kosningu um sameiningu

Reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga (nr. 922/2023) kveður á um það að ef kosning er úrskurðuð ógild, skuli fara fram ný íbúakosning, sk. uppkosning. Um er að ræða endurtekningu á fyrri kosningu með sömu kjörskrá. Sveitarstjórnir sveitarfélaganna ber að ákveða í sameiningu hvenær uppkosning fer fram.

Government Offices of Iceland published this content on May 15, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on May 15, 2026 at 15:55 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]