Government Offices of Iceland

07/01/2026 | Press release | Distributed by Public on 07/01/2026 06:16

Ísland tekur við formennsku í Eystrasaltsráðinu

Ísland tók í dag við formennsku í Eystrasaltsráðinu af Póllandi til eins árs. Í formennskutíð sinni mun Ísland hafa áfallaþol samfélaga í öndvegi og leitast við að halda áfram og byggja á hagnýtu samstarfi og árangri fyrri formennskutímabila, í samræmi við langtímaforgangsmál Eystrasaltsráðsins um öryggi, sjálfbærni og samheldni svæðisins. Eru öll þessi þrjú forgangsmálefni höfð að leiðarljósi í formennskuáætlun Íslands.

Áfram verður unnið að endurskoðun á starfsemi ráðsins með tilliti til aukinnar áherslu á öryggispólitísk mál. Það verður hlutverk Íslands í formennskunni að þróa áfram starf Eystrasaltsráðsins sem sveigjanlegan og öflugan vettvang utanríkisráðherra aðildarríkjanna á sviði öryggismála þar sem hægt er að fjalla um margþættar fjölþáttaógnir sem blasa við aðildarríkjum ráðsins, þ.m.t. um siglingaöryggi og vernd mikilvægra innviða.

Formennska Íslands mun þannig einbeita sér að því að efla pólitískt samstarf á vettvangi ráðsins og enn fremur að styrkja samstarf við samstarfsríki, einkum Úkraínu. Á vettvangi vinnuhópa ráðsins verður sjónum einkum beint að áfallaþoli samfélaga (vinnuhópur um almannavarnir), kortlagningu á stöðu flóttabarna og aðgerðum til að mæta áföllum þeirra (vinnuhópur um börn í hættu), og aðgerðum gegn mansali (vinnuhópur um mansal). Menningararfleifð mun einnig vera í brennidepli til að styrkja svæðisbundna sjálfsmynd. Með þessum formennskuáherslum mun Ísland leggja sitt af mörkum til að styrkja getu svæðisins til að takast á við núverandi og framtíðar áskoranir, auk þess að viðhalda sameiginlegum gildum um lýðræði, öryggi og sjálfbæra þróun.

"Formennska Íslands í Eystrasaltsráðinu er kærkomið tækifæri til efla samstarf aðildarríkja ráðsins um sameiginlega hagsmuni ríkjanna á sviði öryggismála og almannavarna. Í breyttu öryggisumhverfi er mikilvægt er að styrkja pólitíska stoð Eystrasaltsráðsins og auka áherslu á öryggismál á svæðinu," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Utanríkisráðuneytið stýrir formennskunni fyrir Íslands hönd en nýtur fulltingis dómsmálaráðuneytis, mennta- og barnamálaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og Barna- og fjölskyldustofu í störfum vinnuhópa, auk þess sem önnur ráðuneyti og stofnanir koma að vinnunni eftir því sem við á.

Eystrasaltsráðið var stofnað árið 1992 og eiga þar sæti Norðurlöndin fimm, Eystrasaltsríkin, Pólland, Þýskaland og Evrópusambandið. Skrifstofa ráðsins hefur aðsetur í Stokkhólmi og á vettvangi þess fer fram margþætt samstarf aðildarríkjanna um málefni á borð við barnavernd, almannavarnir og aðgerðir gegn mansali. Rússlandi var meinuð þátttaka í Eystrasaltsráðinu í byrjun mars 2022. Í kjölfarið, eða 17. maí 2022, tilkynnti Rússland svo formlega um úrsögn sína úr ráðinu.

Hægt er að kynna sér formennskuáætlun Íslands í Eystrasaltsráðinu á bæði íslensku og ensku.

Government Offices of Iceland published this content on July 01, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on July 01, 2026 at 12:16 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]