08/21/2026 | Press release | Distributed by Public on 08/21/2026 05:27
Atvinnuvegaráðuneytið hefur birt áfangaskýrsluna "Greining vegna endurskoðunar stuðningskerfis íslensks landbúnaðar". Skýrslan er unnin af ráðgjafarfyrirtækinu Nordic Insights í tengslum við yfirstandandi endurskoðun á starfsumhverfi íslensks landbúnaðar.
Í skýrslunni er núverandi innlent stuðningskerfi rýnt ásamt því norska auk þess sem skoðað er hvaða möguleikar eru til staðar innan regluverks ESB.
Í skýrslunni kemur m.a. eftirfarandi fram:
"Þessi skýrsla mun sannarlega nýtast vel við þá vinnu sem er fram undan," segir Jarþrúður Ásmundsdóttir sem leiðir samningaviðræður um endurskoðun búvörusamninga á vegum atvinnuvegaráðuneytisins. "Skýrslan gefur glögga mynd af þeim mögueikum sem eru í stöðunni til að treysta stoðir íslensks landbúnaðar."
"Stuðningskerfi landbúnaðarins í núverandi mynd er komið til ára sinna og að mörgu leyti barn síns tíma " segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. "Til dæmis liggur nú ljóst fyrir að tengsl ákveðinna greiðslna við skýr markmið og mælanlegan árangur eru ekki alltaf til staðar eða nógu ljós. En það eru greinilega möguleikar á auka umfang innlendrar
framleiðslu með annarri samsetningu stuðnings."
Skýrslan er áfangaskýrsla sem er ætlað að nýtast við yfirstandandi endurskoðun búvörusamninga og jafnframt að greina þá möguleika í starfsumhverfi landbúnaðar sem ESB-aðild fæli í sér. Nordic Insights mun skila lokaskýrslu til atvinnuvegaráðuneytisins síðar á árinu og áherslur í skýrslunni koma til með að taka mið af þeirri niðurstöðu sem þjóðin kemst að 29. ágúst. Í senn er hægt að vinna nánar að sviðsmyndum vegna mögulegrar ESB-aðildar eða nýta stöðumatið og reynslu Noregs og ESB við endurskoðun innlends stuðningskerfis.