02/06/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/06/2026 08:48
Sendiráð Íslands í Síerra Leóne tók þátt í athöfn í dag, ásamt þarlendum stjórnvöldum og Mannfjöldastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), í tilefni af alþjóðlegum degi um afnám kynfæralimlestinga kvenna og stúlkna.
Forstöðumaður sendiráðs Íslands í Síerra Leóne, Ásdís Bjarnadóttir, hélt erindi af þessu tilefni þar sem hún áréttaði grunngildi utanríkisstefnu og þróunarsamvinnu Íslands um mannréttindi og jafnrétti kynjanna.
"Velmegun og framfarir samfélaga byggjast á jafnrétti og frelsi kvenna og stúlkna til að taka ákvarðanir um sitt eigið líf og líkama," sagði Ásdís í erindi sínu. Jafnframt að íslensk stjórnvöld muni áfram leggja baráttunni gegn kynfæralimlestingum lið, m.a. með því að fjárfesta í forvörnum og þjónustu sem taki mið af þörfum kvenna og stúlkna sem neyðast til að lifa með afleiðingum slíkra limlestinga.
Kynfæralimlestingar eiga sér sterkar menningarlegar rætur í Síerra Leóne og því er afar mikilvægt að vinna að viðeigandi lausnum í samvinnu við þarlend stjórnvöld og samfélög, sér í lagi með þolendunum sjálfum.
Talið er að átta af hverjum tíu stúlkum og konum á aldrinum 15-49 í Síerra Leóne hafi sætt kynfæralimlestingum. Slíkum aðgerðum fylgja margvíslegir alvarlegir fylgikvillar, m.a. alvarlegar blæðingar, sýkingar, vandkvæði við fæðingar og aukin hætta á andvana fæðingum. Þar að auki geta sálrænar afleiðingar verið verulega íþyngjandi fyrir þolendur.
Ný könnun, sem framkvæmd var í norðurhluta Síerra Leóne með stuðningi íslenskra stjórnvalda í samstarfi við þarlend stjórnvöld og UNFPA, staðfestir að kynfæralimlestingar eru enn útbreitt vandamál. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hafa yfir 90 prósent kvenna og stúlkna sætt slíkum limlestingum þar, og þá sér í lagi stúlkur á aldrinum 10 til 15 ára.
Þá leiddi könnunin í ljós að kynfæralimlestingar séu álitnar sem vígsla fyrir stúlkur ogþær réttlættar sem langvarandi hefð. Þá eigi stúlkur jafnframt hættu á að vera útskúfaðar úr samfélögum taki þær ekki þátt í slíkri athöfn.
Bann við kynfæralimlestingum náði ekki framgöngu í nýlegum barnaverndarlögum í Síerra Leóne, og njóta slíkar aðgerðir enn töluverðs stuðnings þrátt fyrir úrskurð dómstóls Efnahagsbandalags Vestur-Afríkuríkja um að þær brjóti í bága við mannréttindi kvenna og stúlkna í Síerra Leóne.
Í samstarfsverkefni Íslands, stjórnvalda í Síerra Leóne og UNFPA um upprætingu kynfæralimlestinga stúlkna er lögð áhersla á heildræna nálgun þar sem gagnasöfnun, rannsóknir, stuðningur við grasrótina og valdefling kvenna og stúlkna, sér í lagi þolendur, er í forgrunni. Þá er sömuleiðis lögð áhersla á víðtækt samstarf við þarlend stjórnvöld, samfélagsleiðtoga, grasrótarsamtök og stofnanir Sameinuðu þjóðanna í Síerra Leóne.
Íslensk stjórnvöld hafa þegar stutt við mótun nýrrar stefnu í baráttunni, sem leidd var af jafnréttis- og barnamálaráðuneyti Síerra Leóne. Stofnuð voru níu málsvarasamtök fyrir þolendur og komið á fót nemendafélögum í tíu skólum til að veita stúlkum fræðslu og valdeflingu til að taka upplýsta ákvörðun um eigin velferð.
Þá hafa íslensk stjórnvöld stutt við verkefni á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og UNFPA í á annan áratug, er lýtur að afnámi kynfæralimlestinga kvenna og stúlkna. Verkefnið nær til átján ríkja og miðar að því að uppræta slíkar aðgerðir fyrir árið 2030.