Prime Minister's Office of Iceland

06/26/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/26/2026 10:23

Undirbúningur vegna almyrkvans víða vel á veg kominn

Undirbúningi í tengslum við almyrkvann þann 12. ágúst miðar almennt vel og hann er á mörgum stöðum á lokametrunum. Þetta kemur fram í minnisblaði stýrihóps Stjórnarráðsins um samhæfingu undirbúnings vegna almyrkvans.

Minnisblaðið var lagt fram á fundi ríkisstjórnarinnar í síðustu viku. Sem fyrr eru það tilmæli stjórnvalda að fólk á vestanverðu landinu og suðvesturhorninu reyni að njóta þessa einstæða og sögulega atburðar heima eða í sínu nærumhverfi.

Stýrihópur Stjórnarráðsins hefur farið í vettvangsferðir á Vestfirði, Vesturland, höfuðborgarsvæðið og Reykjanes og kynnt sér vinnuna sem þar er í gangi.

Landvörðum fjölgað og mögulegar lokanir undirbúnar

Vestfirðir eru eitt helsta álagssvæðið. Verið er að stækka bílastæði við Látrabjarg, bæta salernisaðstöðu, afmarka bjargbrún, fjölga landvörðum og undirbúa umferðarstýringu og mögulegar lokanir þegar þolmörkum ákveðinna staða er náð. Þá verða gerðar úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg.

Fjarskiptaöryggi við Látrabjarg styrkt

Í minnisblaðinu kemur fram að vegurinn um Látrabjarg beri að líkindum þá umferð sem fer um hann enda mest fólksbílar og smærri rútur. Vegurinn verður einstefna í aðdraganda almyrkvans og til baka eftir hann. Vegurinn verður seinfarinn sem getur haft áhrif á viðbragðsgetu lögreglu og sjúkraflutninga. Óheimilt verður að aka stærri ökutækjum en 19+1 á Örlygshafnarvegi og Rauðasandsvegi þann 12. ágúst.

Mannfjöldi helsta áskorunin á Vesturlandi

Á Vesturlandi er undirbúningur kominn langt, meðal annars umferðarstýring, bílastæði, þjónusta, náttúruvernd og viðbúnaður lögreglu og heilbrigðisstofnana. Skýrar aðgerðaráætlanir liggja fyrir en gera má ráð fyrir mikilli umferð um Vesturland og álagi á Hvalfjarðargöng og Borgarfjarðarbrú. Helsta áskorunin á Vesturlandi er mannfjöldi en líklegt er að þeir Íslendingar og aðrir landsmenn sem taka ákvörðun um ferðalag með skömmum fyrirvara stefni á Vesturland frekar en Vestfirði.

Á höfuðborgarsvæðinu hafa sveitarfélög gert sameiginlega aðgerðaáætlun og áhersla er á markvissa upplýsingagjöf sem geti haft áhrif á ferðamynstur og dregið úr álagi á Vesturland, Vestfirði og Reykjanes. Hvatt verður til þess að fólk njóti almyrkvans heima eða í sínu nærumhverfi.

Á Reykjanesi er vinnan einnig vel á veg komin. Helstu áskoranir þar eru einkaflugvélar, drónaflug, möguleg samþjöppun fólks á vinsælum skoðunarsvæðum og álag á Reykjanesbraut.

Lögregluembætti fá fjármagn vegna viðbúnaðar

Í minnisblaði stýrihópsins kemur fram að lögregluembætti hafi fengið heimild til að standa straum af nauðsynlegum útgjöldum vegna viðbúnaðar. Þetta hafi dregið verulega úr óvissu um aðkomu björgunarsveita og fjármögnun verkefna. Lögregluembætti á almyrkvaslóð gera ráð fyrir töluverðum viðbúnaði og aukinni viðbragðsgetu til að stuðla að öryggi almennings, stýra og greiða fyrir umferð og lágmarka áhættu vegna slysa eða annarra ófyrirséðra atvika.

Sævar Helgi stjórnvöldum innan handar

Á öllum áhrifasvæðum er unnið að umferðarstýringu, viðbúnaði, upplýsingagjöf, náttúruvernd og móttöku gesta. Stýrihópurinn telur að undirbúningur sem þessi sé lykilforsenda þess að hægt verði að taka á móti miklum fjölda gesta með öruggum hætti.

Samkvæmt upplýsingum frá almannvarnadeild ríkislögreglustjóra má búast við töluverðum umferðarþunga í þrjá daga fyrir atburðinn og tvo daga á eftir. Landhelgisgæslan gerir ráð fyrir að vera með tvær þyrlur og tvær áhafnir til taks í Reykjavík og að þriðja áhöfnin verði tiltæk til að leysa af ef þörf krefur. Þyrlurnar verða í Reykjavík en varðskipið Freyja staðsett úti fyrir Vesturlandi auk þess sem nýir aðgerðarbátar Gæslunnar verða á Snæfellsnesi annars vegar og Suðurnesjum hins vegar til að sinna löggæslu á hafi ef á þarf að halda.

Bæði Samgöngustofa og Landhelgisgæslan telja jafnframt mikilvægt að fólk kynni sér þær kröfur sem gerðar eru til farþegaflutninga á sjó og minna á að ekki er heimilt að bjóða upp á slíkt án tilskilinna leyfa.

Minnt er á upplýsingagáttina um almyrkvann, island.is/almyrkvi. Hún verður uppfærð reglulega með nýjustu upplýsingum.

Prime Minister's Office of Iceland published this content on June 26, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 26, 2026 at 16:23 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]