Government Offices of Iceland

03/05/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/05/2026 11:57

Fjölmennt á Landssamráðsfundi gegn ofbeldi

Um 400 manns sátu landssamráðsfund gegn ofbeldi og afleiðingum þess sem félags- og húsnæðismálaráðuneytið og ríkislögreglustjóri boðuðu til á Hilton Reykjavík Nordica í gær, miðvikudag. Þá fylgdust um 1.300 manns jafnframt með í streymi.

Markmið fundarins var að efla samráð og þverfaglegt samstarf gegn ofbeldi á Íslandi, með sérstaka áherslu á draga úr ítrekuðu ofbeldi. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, opnaði fundinn, og sagði ánægjulegt að sjá í salnum svo fjölmennan og breiðan hóp ólíkra starfsstétta, sem væri til marks um áhuga, ábyrgð og vilja til raunverulegra breytinga.

"Það er mjög dýrmætt að geta miðlað þekkingu, reynslu og sýn þvert á stofnanir og fagstéttir. Ofbeldi er ekki einangrað vandamál sem tilheyrir einni stofnun, einni starfsgrein eða einu kerfi," sagði hann.

"Reglulegir fundir af þessum toga eru mikilvægir til að fylgjast með framvindu mála, meta árangur aðgerða og greina nýjar áskoranir en eftir því sem samfélagið þróast og aðstæður breytast taka birtingarmyndir ofbeldis einnig á sig nýjar og flóknari myndir. Því þurfum við að viðhalda árvekni, endurmeta verklag og tryggja að úrræði haldist í takt við raunveruleikann."

Samstaða um þverfaglegar lausnir

Á fundinum var meðal annars farið yfir tölfræði lögreglu um ofbeldi og birtingarmyndir ofbeldis, flutt voru fjölbreytt erindi og málin síðan rædd í pallborði. Þá voru haldnar fjórar vinnustofur svæðisbundinna samráða um afbrotavarnir á vegum lögregluembættanna og samstarfsaðila með ólíkum viðfangsefnum sem enduðu með því að lagðar voru fram úrbótatillögur.

Mikil fjölbreytni var í hópi þátttakenda og tóku fulltrúar frá lögreglunni, sveitarfélögum, heilbrigðiskerfinu, fjölda félagasamtaka, fræðafólki, Alþingi og öðrum lykilstofnunum þátt í erindum, pallborðum og vinnustofum. Niðurstöður vinnustofa munu leiðbeina í áframhaldandi vinnu hvort sem það varðar þverfaglega þjónustu við þolendur, viðbrögð við ofbeldi gegn öldruðum, heimilisofbeldi á landsvísu eða bættum stuðningi við drengi og karla sem þolendur ofbeldis.

Skýr samstaða ríkti á fundinum um að ítrekað ofbeldi verði ekki stöðvað af einni stofnun eða einum geira - heldur aðeins í þverfaglegu samráði.

Grímur Hergeirsson ríkislögreglustjóri lokaði fundinum með eftirfarandi orðum:

"Eitt af því sem einkenndi þennan fund var skýr samstaða um að við getum ekki unnið þetta verk ein, hvert og eitt. Lögreglan ein getur ekki stöðvað ofbeldi. Félagsþjónustan ein getur ekki brotist í gegnum einangrun þolenda. Heilbrigðiskerfið eitt getur ekki meðhöndlað sárin sem ofbeldi skilur eftir sig. Félagasamtökin eins frábær og fjölbreytt þau eru, geta þetta ekki ein. Einstaklingarnir geta þetta ekki ein. Aðeins saman getum við breytt til batnaðar."

Streymi frá fundinum má finna hér: Streymi frá fundi | Ísland.is

Félags- og húsnæðismálaráðherra ávarpar fundinn.

Government Offices of Iceland published this content on March 05, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 05, 2026 at 17:57 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]