05/07/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/07/2026 03:48
Ársskýrsla lánamála ríkisins fyrir árið 2025 hefur nú verið gefin út og birt opinberlega í fyrsta skipti. Í henni er farið yfir helstu þætti lánamála ríkisins, fjármögnun ríkissjóðs og lántökur aðila með ríkisábyrgð.
"Birting skýrslunnar er mikilvægur liður í því að auka gagnsæi í stýringu ríkisfjármála. Hún sýnir einnig að staða ríkisins í lánamálum er traust og fer batnandi," segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Seðlabanki Íslands fer með umsýslu lána fyrir ríkissjóð í nafni Lánamála ríkisins,í samræmi við samningvið fjármála- og efnahagsráðuneytið. Á grundvelli samningsins skilar Seðlabankinn árlegri skýrslu um lánamál ríkissjóðs. Markvisst hefur verið unnið að því að bæta upplýsingagjöf um lánamál ríkissjóðs og er opinber birting ársskýrslunnar liður í því.
Í skýrslunni kemur meðal annars fram að ríkisábyrgðir hafi dregist saman um rúm 85% á árinu. Þá lækkun má nær alfarið rekja til sögulegs uppgjörs ÍL-sjóðs.
Þá er lánstraust íslenska ríkisins áfram sterkt á alþjóðavísu og batnaði á árinu en lánshæfiseinkunn ríkissjóðs hefur hækkað síðustu misseri og er núna A+.
Ný stefna í lánamálum var kynnt í lok árs 2025, en þar er lögð áhersla á jafnvægi, varfærni og skýra upplýsingagjöf. Ein veigamikil breyting lýtur að meiri fyrirsjáanleika í erlendum lántökum þar sem nú er stefnt að árlegri útgáfu á alþjóðamörkuðum, sem er til þess fallið að hafa jákvæð áhrif á vaxtakjör ríkissjóðs og þar með annarra innlendra lántaka sem sækja lánsfjármagn á erlenda markaði.
Frumvarp um lánaumsýslu og ríkisábyrgðir verður lagt fram í haust með það að markmiði að styrkja umgjörð um lánaumsýslu og veittar ríkisábyrgðir enn frekar.