Government Offices of Iceland

07/21/2026 | Press release | Distributed by Public on 07/21/2026 11:18

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB

Kosning utan kjörfundar erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sem fram fer 29. ágúst 2026, hefst 27. júlí nk.

Við minnum þau sem verða erlendis á kjördag, en vilja nýta atkvæðisréttinn, að skipuleggja sig fyrirfram; kjósa á Íslandi áður en farið er af landi brott ef það er hægt en kynna sér ella upplýsingar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu í sendiráðum Íslands og hjá kjörræðismönnum erlendis.

Þá er nákvæmar upplýsingar um kjörræðismenn, staðsetningar, opnunartíma og fyrirkomulag að finna hér.

Kjörstaðir erlendis eru:

• Sendiskrifstofur Íslands (nema fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu í Brussel)
• Aðalræðisskrifstofur í Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk
• Hjá kjörræðismönnum

Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir séu á kjörskrá á vef Þjóðskrár.

Sýna þarf skilríki (vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini) á kjörstað.

• Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila.
• Athugið að senda þarf atkvæði beint á það sveitarfélag sem kjósandi er skráður með lögheimili í.
• Ef senda á atkvæði með pósti er ráð að kjósa tímanlega og þá þarf sömuleiðis að taka mið af sendingartíma og áreiðanleika viðkomandi póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.

Kjósandi getur beðið kjörstjóra um að setja atkvæði í almennan póst, en það tryggir ekki að atkvæðið berist í tæka tíð.

Nánari upplýsingar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu má finna á síðu Landskjörstjórnar.

Á Ísland.is eru aðgengilegar upplýsingar um hvaðeina sem viðkemur framkvæmd kosninga, bæði á íslensku og ensku.

Government Offices of Iceland published this content on July 21, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on July 21, 2026 at 17:18 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]