Government Offices of Iceland

05/13/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/13/2026 10:45

Samkomulag undirritað við Rúmeníu vegna Uppbyggingarsjóðs EES

Samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Rúmeníu hins vegar, var undirritað í dag, 13. maí 2026. Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands gagnvart Rúmeníu, undirritaði samkomulagið fyrir hönd Íslands.

Markmið Uppbyggingarsjóðsins er að stuðla að félagslegri og efnahagslegri samheldni innan Evrópu og styrkja tvíhliða tengsl gjafríkjanna, Íslands, Liechtenstein og Noregs, við þau fimmtán Evrópusambandsríki sem njóta stuðnings sjóðsins. Nú hefst undirbúningur úthlutana úr sjóðnum í Rúmeníu á hinu nýja framkvæmdatímabili.

Rannís gegnir hlutverki sérstaks samstarfsaðila í tveimur áætlunum sjóðsins í Rúmeníu, á sviðum hreinna orkuskipta (e. Clean Energy Transition) og rannsókna og nýsköpunar (e. Research and Innovation).

Samstarf Íslands og Rúmeníu innan Uppbyggingarsjóðsins byggir á traustum grunni frá fyrri sjóðstímabilum, til dæmis á sviðum jarðvarma, rannsókna menntunar og menningar.

Government Offices of Iceland published this content on May 13, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on May 13, 2026 at 16:46 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]