05/19/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/19/2026 11:57
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti í dag tvíhliða fund með Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, í Osló en ráðherrarnir voru þar staddir vegna þriðja leiðtogafundar Norðurlandanna og Indlands. Megináherslur fundar Kristrúnar og Modis voru aukin viðskiptatækifæri milli landanna í kjölfar þess að víðtækur fríverslunarsamningur EFTA og Indlands tók gildi á síðasta ári.
"Fundur okkar Modi í dag var jákvæður og uppbyggilegur. Það eru gríðarleg tækifæri í viðskiptasamstarfi Íslands og Indlands á grundvelli þessa nýja og metnaðarfulla fríverslunarsamnings og það var mikilvægt fyrir mig að heyra hversu mikið Modi leggur upp úr að efla enn frekar þessi tengsl," segir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra.
Í þessu samhengi hefur íslenskt atvinnulíf sótt í sig veðrið á undanförnum misserum, ekki síst í nýtingu jarðhita á Indlandi. Forsætisráðherra var viðstödd undirritun á viljayfirlýsingu Carbon Iceland og indverska fyrirtækisins JSW Steel á sviði kolefnisföngunar en JSW Steel er annað stærsta stálfyrirtæki Indlands.
"Það er augljóst að þær íslensku fjárfestingar sem gerðar hafa verið á Indlandi að undanförnu eru mikils metnar. Atvinnulíf þessa fjölmennasta ríkis veraldar er í örri þróun og hafa Indverjar tekið stór skref í átt að t.a.m. orkuskiptum þar sem íslensk sérþekking og reynsla í nýtingu jarðhita reynist ákaflega vel. Eitt það allra farsælasta sem Íslendingar hafa gert er að beisla jarðhitann. Ég er stolt af því hvernig erlend ríki, bæði stór og smá, líta upp til okkar á þessu sviði," segir Kristrún.
Þá var sjónum einnig beint að mikilvægu framlagi Indlands til hátækniiðnaðar á Íslandi, þar sem fjölmargir Indverjar starfa. Loks barst talið að menningartengslum ríkjanna, þar sem ráðherrarnir viðruðu hugmyndir um að styrkja tengsl milli Bollywood-kvikmyndaiðnaðarins og íslenskrar kvikmyndagerðar.
Leiðtogafundur Indlands og Norrænu ríkjanna fimm fór fram í ráðhúsi Óslóborgar en síðast funduðu þeir í Kaupmannahöfn árið 2022. Á fundinum var rætt um stöðu heimsmála, stríðið í Úkraínu og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs í tengslum við orkuöryggi og orkuskipti. Alþjóðaviðskipti og tollastríð voru einnig til umræðu og rætt um leiðir til að efla samstarf Indlands og Norðurlandanna á þeim óróatímum sem nú standa yfir.
Norrænu forsætisráðherrarnir áttu einnig samráðsfund í nýja húsnæði norska stjórnarráðsins í miðborg Óslóar í boði Jonasar Gahr Støre forsætisráðherra Noregs. Var sjónum þar beint að samstarfinu innan Atlantshafsbandalagsins (NATO) í aðdraganda leiðtogafundar bandalagsins í Tyrklandi í sumar. Þá leiddi forsætisráðherra umræður um öryggis- og varnarmál á Norðurslóðum og í Norður-Atlantshafi. Forsætisráðherrarnir ræddu einnig um stöðu mála í Úkraínu og áframhaldandi stuðning Norðurlandanna við varnir Úkraínu.
Sameiginleg yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlandanna og Indlands (á ensku)