Prime Minister's Office of Iceland

04/10/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/10/2026 10:19

Forsendur ekki fyrir hendi til að hefja skólahald í Grindavík að svo stöddu

Ríkisstjórnin fjallaði í morgun um stöðu mála í Grindavík í ljósi áframhaldandi náttúruvár og óvissu um þróun jarðhræringa. Það er mat ríkisstjórnarinnar að ekki séu að svo stöddu forsendur til að hefja að nýju skólahald í Grindavík eða að stuðla að aukinni búsetu barna í bænum. Engin gögn liggja fyrir sem styðja að skólahald geti hafist í Grindavík við núverandi aðstæður. Mat ríkisstjórnarinnar byggir á rammaáætlun Grindavíkurnefndar um endurreisn Grindavíkur og skýrslu Alþjóðabankans um sama efni, áhættumati Grindavíkurnefndar og hættumati Veðurstofunnar.

Samkvæmt hættumati Veðurstofunnar er veruleg óvissa áfram til staðar í Grindavík og enn er möguleiki á kvikuhlaupi eða eldgosi með skömmum fyrirvara. Núgildandi almannavarnastig er óvissustig, sem felur í sér að aðstæður geta breyst hratt. Gera þarf ráð fyrir skyndilegum rýmingum og óvíst er hversu lengi slíkt ástand getur varað. Þetta setur verulegar skorður við skipulag daglegs lífs, þar á meðal skólahald.

Í skýrslum Grindavíkurnefndar og Alþjóðabankans er lögð rík áhersla á vernd barna. Þar kemur m.a. fram að við ákvarðanir um búsetu og skólahald þurfi að beita strangari viðmiðum fyrir börn en aðra hópa, enda séu þau sérstaklega viðkvæm fyrir áhrifum óvissu. Forðast eigi að setja börn aftur í aðstæður þar sem hætta er á skyndilegum atburðum eða endurteknum rýmingum. Ákvarðanir þurfi að byggist á því sem barni er fyrir bestu.

Ákvarðanir um skólahald og búsetu skulu byggjast á skýrt skilgreindum viðmiðum um ásættanlega áhættu, en slík viðmið liggja ekki fyrir að svo stöddu. Þar til þau hafa verið skilgreind eru ekki fyrir hendi faglegar forsendur til að taka ákvarðanir sem leiða til aukinnar viðveru viðkvæmra hópa í bænum. Stjórnvöld munu nú hefja vinnu við að skilgreina slík viðmið.

Ríkisstjórnin mun á næstu mánuðum fjalla nánar um tillögur og ábendingar sem fram koma í skýrslum Grindavíkurnefndar og Alþjóðabankans og leggja mat á næstu skref í samstarfi við bæjarstjórn Grindavíkurbæjar og aðra hagaðila.

Endurreisn Grindavíkur - Rammaáætun

Skýrsla Alþjóðabankans: Advisory report on resilient recovery framework for Grindavík (á ensku - íslensk þýðing er í vinnslu)

Endurreisn Grindavíkur - Stutt samantekt úr skýrslu Alþjóðabankans

Prime Minister's Office of Iceland published this content on April 10, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on April 10, 2026 at 16:20 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]