Alma Ibudafelag hf.

10/08/2026 | Press release | Distributed by Public on 10/08/2026 10:27

Alma íbúðafélag hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum AL210628

Icelandic Birt: 2026-10-08 18:27:13 CEST Alma íbúðafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Alma íbúðafélag hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum AL210628

Alma íbúðafélag hf. ("ALMA") hefur lokið stækkun á skuldbréfaflokknum AL210628 með sölu á skuldabréfum fyrir 1.160.000.000 kr. á pari.

Um er að ræða fljótandi vaxtagreiðslubréf á 1M REIBOR að viðbættu 1,24% vaxtaálagi og lokagjalddaga 21. júní 2028. Skuldabréfin eru gefin út í 20.000.000 kr. nafnverðseiningum og verður heildarstærð eftir útgáfu 2.660.000.000 kr. Skuldabréfaflokkurinn er gefinn út undir útgáfuramma félagsins og veðtryggður samkvæmt almennu tryggingafyrirkomulagi.

Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður fimmtudaginn 15. október næstkomandi og í kjölfarið verður sótt um að stækkunin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.

Grunnlýsinguna, endanlega skilmála og önnur skjöl sem tengjast skuldabréfunum og útgáfu þeirra má nálgast á vefsíðu félagsins: Alma íbúðafélag | Skuldabréfafjármögnun

Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.

Nánari upplýsingar veita:

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, [email protected].

Ingólfur Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf., [email protected].

2026-10-08---Tilkynning-i-kaupholl---stkkun-AL210628.pdf https://attachment.news.eu.nasdaq.com/a626a221a836c5e8d86093b665303bb5f
Company News Subscribe European Market Activity Nasdaq Europe
© 2026, Nasdaq, Inc. All Rights Reserved.
Alma Ibudafelag hf. published this content on October 08, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on October 08, 2026 at 16:27 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]