Government Offices of Iceland

03/12/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/12/2026 10:57

Tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna í brennidepli á fundum í Washington

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti fund í gær með Andy Baker, varaþjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjaforseta, í Washington. Tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna bar hæst í samtölum þeirra en einnig staða heimsmála, sameiginlegir hagsmunir ríkjanna á norðurslóðum og fleira. Þá fundaði utanríkisráðherra með Elbridge Colby, aðstoðarvarnarmála-ráðherra, og Jeff Goettman, varautanríkisviðskiptaráðherra Bandaríkjanna.

"Efst á baugi voru tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna. Samband ríkjanna stendur styrkum fótum og það staðfesta fundir mínir hér í Washington. Við höfum verið að horfa upp á vaxandi togstreitu í alþjóðasamskiptum og það geisa stríð bæði í Evrópu og í Mið-Austurlöndum og því var mikilvægt að eiga þessi hreinskiptnu samtöl hér í Washington í dag." sagði Þorgerður Katrín.

"Ég tók upp málefni norðurslóða í þessum samtölum og Grænland sérstaklega bar líka á góma, bæði í þjóðaröryggisráðinu og varnarmálaráðuneytinu. Varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna hefur aldrei verið nánara og ég styrktist í trúnni hér um að bandarískir ráðamenn meta það mikils. Ég átti líka gott samtal við varautanríkisviðskiptaráðherra Bandaríkjanna. Bandaríkin eru eitt af okkar mikilvægustu viðskiptalöndum og mörg íslensk fyrirtæki reiða sig á Bandaríkjamarkað fyrir vörur sínar og þjónustu. Við ræddum m.a. tolla sem í gildi eru á íslenskar vörur til Bandaríkjanna. Íslensk og bandarísk stjórnvöld munu halda áfram samtali sem miðar að því að auka fyrirsjáanleika í viðskiptum ríkjanna" sagði utanríkisráðherra enn fremur.

Þorgerður Katrín nýtti einnig heimsóknina til Washington D.C. til að hitta að máli þrjá þingmenn öldungadeildar Bandaríkjaþings, repúblikanana Steve Daines og Lisu Murkowski og demókratann Jeanne Shaheen. Daines er formaður undirnefndar utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar um málefni Evrópu. Shaheen, sem er leiðtogi demókrata í utanríkismálanefnd og situr einnig í hermálanefnd öldungadeildarinnar, er annar formanna þingmannanefndar gagnvart Atlantshafsbandalaginu. Þá er Murkowski, sem er frá Alaska og tíður gestur á Íslandi, jafnframt formaður sérstaks norðurslóðaþingmannahóps í öldungadeildinni. Þess má að lokum geta að Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, sem tók þátt í fundum ráðherra í Washington, fundaði sérstaklega með Christopher J. Mahoney, varaformanni herráðs Bandaríkjanna, um samstarf ríkjanna.

Government Offices of Iceland published this content on March 12, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 12, 2026 at 16:57 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]