06/11/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/11/2026 08:52
Dómsmálaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um útlendinga sem snýr meðal annars að forgangsröðun umsókna, áhættumat gagna og fleira. Stærsta breytingin snýr að nýju ákvæði um mat á áreiðanleika gagna og áhættumat við afgreiðslu umsókna um dvalarleyfi.
"Við erum að draga úr misræmi í íslenskri framkvæmd og efla kerfið. Hér erum við líka að styðja við atvinnulífið þannig að hægt er að forgangsraða vel undirbúnum umsóknum. Skref fyrir skref erum að ná betri stjórn í samræmi við skýra stefnu ríkisstjórnarinnar," segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Með breytingunni er betur skilgreind málsmeðferð Útlendingastofnunar við mat á trúverðugleika og áreiðanleika þeirra gagna sem lögð eru fram með umsóknum. Stofnunin hefur nú skýrari heimild til að afla upplýsinga frá lögreglu, öðrum stjórnvöldum, alþjóðlegum gagnagrunnum og útlendingayfirvöldum á Norðurlöndum þegar þörf krefur.
Breytingunni er ætlað að efla öryggi og gæði stjórnsýslunnar og draga úr hættu á notkun falsaðra eða óáreiðanlegra gagna. Þá getur Útlendingastofnun nú forgangsraðað fullbúnum umsóknum um dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku umfram aðrar umsóknir.
Meðal annarra breytinga má nefna að þau sem lokið hafa doktorsnámi hér á landi geta endurnýjað dvalarleyfi sitt í allt að tólf mánuði að námi loknu. Breytingin eykur líkur á því að viðkomandi taki þátt í atvinnu-og nýsköpunarumhverfi til lengri tíma og styðji þannig við samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu umhverfi.
Fjöldi dvalarleyfa fimmfaldast frá 2017
Breytingarnar má rekja til vinnu starfshóps sem ráðherra skipaði í byrjun árs. Starfshópnum var falið að skoða breytingar á reglugerðum í ljósi reynslu laga um útlendinga og álitaefna sem hafa komið upp komið á undanförnum árum. Þetta er eingöngu fyrsti áfangi verkefnisins og við undirbúning var meðal annars tekið mið af tillögum starfshóps um dvalarleyfi.