04/02/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/02/2026 08:46
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag símafund með Christopher Landau varautanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þar voru pólitísk samskipti ríkjanna, gjöfult varnarsamstarf þeirra og viðskiptamál í brennidepli.
Þá var staða alþjóðamála sömuleiðis til umræðu, m.a. sú alvarlega staða sem við blasir í Mið-Austurlöndum, þ.m.t. í Íran, og málefni Úkraínu. Þorgerður Katrín undirstrikaði mikilvægi samskipta ríkjanna í öryggis- og varnarmálum en einnig á sviði viðskipta og fjárfestinga.
"Við áttum gott og hreinskiptið samtal, ekki aðeins um mikilvægi tvíhliða samskipta ríkja okkar, heldur einnig um þær viðsjár sem uppi eru í heiminum. Í því samhengi lagði ég aukinn þunga á að samstaða Atlantshafsbandalagins sé mikilvægari nú en nokkru sinni fyrr," segir Þorgerður Katrín. "Ég lagði áherslu á hversu sterk tengsl og samskipti ríkjanna hafa verið í gegnum áratugina, líkt og nú á sviði öryggis- og varnarmála. Þá skipta umfangsmikil viðskipti Íslands og Bandaríkjanna miklu máli sem og að gagnkvæmar fjárfestingar ríkjanna fari vaxandi samfélögum okkar til heilla."