Government Offices of Iceland

06/24/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/24/2026 02:51

Textuð myndbönd frá ráðstefnu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum

Fjármála- og efnahagsráðherra efndi til ráðstefnu í Hörpu í byrjun júní í tilefni af útgáfu skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Skýrslan var unnin af hópi erlendra sérfræðinga og er henni ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi. Unnið er að þýðingu skýrslunnar á íslensku og verður hún birt fljótlega.

Ráðstefnan fór bæði frá á íslensku og ensku. Hér má sjá dagskrárliðina með íslenskum texta. Einnig er til útgáfa með enskum texta.

Opnunarávarp: Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra

Kynning á niðurstöðum skýrslu sérfræðingahóps um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum: Catherine L. Mann,

Boris Vujčić, varabankastjóri Evrópska seðlabankans

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri

Pallborð: Krónan, evran og framtíð gjaldmiðlamála á Íslandi

Þátttakendur:

  • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Catherine L. Mann, einn skýrsluhöfunda og fyrrverandi aðalhagfræðingur OECD
  • Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri
  • Sigríður Benediktsdóttir, lektor við Columbia-háskóla

Pallborð: Vinnumarkaður og samkeppnishæfni í breyttu gjaldmiðlaumhverfi

Þátttakendur:

  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
  • Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands
  • Gylfi Zoega, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands
  • Una Jónsdóttir, forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans

Skýrsla um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum var unnin af hópi erlendra sérfræðinga að frumkvæði fjármála- og efnahagsráðherra. Markmið hennar er að greina helstu kosti og áskoranir sem felast í mismunandi fyrirkomulagi gjaldmiðlamála og styðja við upplýsta og málefnalega umræðu um framtíðarskipan gjaldmiðlamála á Íslandi.

Government Offices of Iceland published this content on June 24, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 24, 2026 at 08:51 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]