Prime Minister's Office of Iceland

06/18/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/18/2026 07:47

Atvinnustefnuráð gefur út sína fyrstu stöðuskýrslu

Atvinnustefnuráð hefur gefið út sína fyrstu stöðuskýrslu, þar sem fram kemur mat ráðsins á nýrri atvinnustefnu Íslands og aðgerðaáætlun hennar. Atvinnustefnuráð starfar sjálfstætt og veitir ráðgjöf í tengslum við mótun og innleiðingu atvinnustefnu stjórnvalda.

Ráðið fagnar frumkvæði stjórnvalda að því að móta heildstæða atvinnustefnu og bendir á að hún sé vel rökstudd í ljósi núverandi stöðu í alþjóðamálum og þeirra efnahagslegu og samfélagslegu umbreytinga sem Ísland stendur frammi fyrir. Ráðið telur að stefnan byggi á traustum greiningum og styður áherslu hennar á aukna framleiðni, útflutning og viðnámsþrótt til lengri tíma.

Meginboðskapur skýrslunnar er mikilvægi skilvirkrar innleiðingar. Ráðið fagnar skýrri aðgerðaáætlun og undirstrikar að árangur muni ráðast af skýrum afurðum, ábyrgðarskiptingu og mælikvörðum til að fylgjast með framvindu.

"Stjórnvöld hafa stigið mikilvægt skref með því að leggja fram heildstæða atvinnustefnu fyrir Ísland. Næsti áfangi mun ráða úrslitum: árangursrík innleiðing mun krefjast einbeitni, samhæfingar þvert á stjórnsýsluna og mælanlegrar framvindu," segir Robert-Jan Smits, formaður atvinnustefnuráðs.

Ráðið dregur einnig fram mál sem atvinnustefnan fjallar ekki um en þarfnast athygli til að ná meginmarkmiðum hennar, svo sem umbætur á vinnumarkaði, stöðugt gengi, samkeppnishæft skattaumhverfi og öflugri gagna- og greiningargeta til stuðnings við stefnumótun.

Nánar um atvinnustefnu Íslands og atvinnustefnuráð

Prime Minister's Office of Iceland published this content on June 18, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 18, 2026 at 13:47 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]