03/10/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/10/2026 10:45
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ráðið Heiðu Kristínu Helgadóttur sem sérstakan ráðgjafa vegna undirbúnings við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.
Heiða hefur áður komið að stjórnmálastarfi í gegnum Besta flokkinn, Bjarta framtíð og Viðreisn. Auk þess hefur hún víðtæka reynslu af nýsköpun og samskiptamálum bæði á Íslandi og erlendis.
Ráðningin er tímabundin og hyggst utanríkisráðherra ekki ráða sér annan aðstoðarmann meðan á verkefninu stendur.