Government Offices of Iceland

03/06/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/06/2026 09:45

Frumvarp um styrkingu raforkueftirlits kynnt í samráðsgátt

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvaldadrög að frumvarpi til laga um breytingar á raforkulögum nr. 65/2003. Með frumvarpinu er Raforkueftirlitinu falið sjálfstætt ákvörðunarvald um aðferðafræði við útreikning tekjumarka og gjaldskráa flutnings- og dreifiveitna.

Markmið frumvarpsins er að styrkja sjálfstæði og valdheimildir Raforkueftirlitsins og tryggja að íslensk löggjöf samræmist að fullu skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum.

Frumvarpsdrögin kveða á um að Raforkueftirlitið muni setja og birta bindandi reglur um viðmið og aðferðir sem liggja til grundvallar gjaldskrárákvörðunum. Með þessu er brugðist við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að gildandi lög gangi of langt í að kveða á um tæknileg atriði, sem samkvæmt EES-rétti eiga að vera á forræði sjálfstæðs eftirlitsaðila.

Frumvarpinu er einnig ætlað aðbregðast við dómi Hæstaréttar í máli nr. 2/2024 með því að kveða skýrar á um lagastoð gjaldtöku vegna þjónustu flutningsfyrirtækis, þar á meðal vegna innmötunar raforku á flutningskerfið.

Jafnframt eru skýrðar og styrktar heimildir Raforkueftirlitsins til eftirlits með raforkumarkaði, meðal annars til að samþykkja aðferðarfræði gjaldskráa, gefa út bindandi ákvarðanir og skera úr ágreiningi milli notenda og raforkufyrirtækja.

Athygli er vakin á því að umsagnarfrestur vegna frumvarpsins í samráðsgátt stjórnvalda er til 16. mars nk.

Breytingar á raforkulögum (verkefni Raforkueftirlitsins)

Government Offices of Iceland published this content on March 06, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 06, 2026 at 15:45 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]