06/23/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/23/2026 03:19
Vendingar í alþjóðaviðskiptum og áhrif þeirra á starfsemi Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, var á meðal þess sem var í brennidepli á árlegum ráðherrafundi samtakanna sem fór fram í Reykjavík í gær. Fundurinn markar endalok eins árs formennsku Íslands innan EFTA-samstarfsins. Liechtenstein mun taka við formennskukeflinu 1. júlí næstkomandi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra stýrði fundinum. Fundinn sátu einnig Guy Parmelin, efnahagsráðherra Sviss en hann gegnir einnig embætti forseta Sviss um þessar mundir, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, og Sabine Monauni, utanríkisráðherra Liechtenstein.
"Það er mér sönn ánægja að taka á móti vinum okkar frá EFTA-ríkjunum og samstarfsaðilum hér í Reykjavík. Saman sendum við skýr skilaboð um áframhaldandi samvinnu og stuðning við alþjóðaviðskiptakerfið, sem því miður sætir ágjöf nú um stundir. Ekki síst þegar við sjáum viðskipti í auknum mæli vera vopnvædd," segir Þorgerður Katrín.
Á fundinum ítrekuðu ráðherrar EFTA ríkjanna mikilvægi EFTA samstarfsins og áframhaldandi stuðning sinn við reglumiðað, opið og sanngjarnt alþjóðaviðskiptakerfi. Einnig ræddu ráðherrarnir mikilvægi samvinnu við Evrópusambandið og áframhaldandi þátttöku EFTA-ríkjanna innan EES í þróun innri markaðarins.
Á fundinum undirrituðu EFTA-ríkin uppfærðan fríverslunarsamning við Palestínu. Uppfærsla samningsins er liður í stuðningi Íslands og hinna EFTA-ríkjanna við áframhaldandi efnahagsþróun á svæðinu þar sem tvö sjálfstæð og fullvalda ríki búa hlið við hlið í friði og öryggi. Áður höfðu EFTA-ríkin undirritað sambærilegt samkomulag við Ísrael.
Ráðherrar EFTA-ríkjanna funduðu einnig með varaviðskiptaráðherra Víetnam og sammæltust um útlínur nýs fríverslunarsamnings milli aðilana. Vonast er til að samningaviðræðum ljúki á allra næstu dögum.
Sem fyrr leggja EFTA-ríkin áherslu á mikilvægi gagnsæis og samráðs við þingmannanefnd EFTA ásamt ráðgjafarnefnd EFTA sem skipuð er fulltrúum atvinnulífs og samtaka launafólks frá EFTA-ríkjunum. Á fundi ráðherranna með nefndunum var meðal annars rætt um stöðu alþjóðaviðskiptakerfisins, framtíðarhorfur og áherslur EFTA-samstarfsins.