Government Offices of Iceland

04/22/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/22/2026 08:47

Námskeið um öryggis- og varnarmál haldið í sjötta sinn

Yfir 120 manns hafa nú lokið námskeiði um öryggis- og varnarmál, sem varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins og skrifstofa alþjóðamála og skrifstofa löggæslumála í dómsmálaráðuneytinu standa fyrir. Námskeiðið fer fram tvisvar á ári og var vornámskeiðið haldið í síðustu viku, dagana 13.-17. apríl.

Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á málaflokknum hjá starfsfólki ráðuneyta, stofnana, fjölmiðla, háskóla, fyrirtækja og samtaka sem koma að öryggis- og varnarmálum með einum eða öðrum hætti.

"Mikilvægi þess að efla þekkingu og stuðla að upplýstri umræðu um öryggis- og varnarmál á breiðum grunni hefur sjaldan verið brýnni. Námskeiðið hefur reynst afar farsælt og veitir þátttakendum dýrmæta innsýn og aukinn skilning á málaflokknum," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Lagt er upp með að þau sem sæki námskeiðið séu fjölbreyttur hópur. Meðal nemenda í ár voru meðal annars starfsfólk frá Ríkissaksóknara, Morgunblaðinu og Háskólanum í Reykjavík. Bæði utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra heilsuðu upp á þátttakendur þegar námskeiðið hófst, spjölluðu við þá og svöruðu spurningum.

"Traust milli aðila, til stjórnvalda og almennt í samfélaginu er einn af hornsteinum áfallaþols. Þetta vel heppnaða námskeið hjálpar til við að auka öryggisvitund og styrkir tengslanet þeirra sem þurfa að bregðast hratt við og vinna vel saman undir álagi. Þannig fær almenningur skýr og trúverðug skilaboð þegar mest á reynir," segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Námskeiðið er hluti af markvissri uppbyggingu þekkingar og samstarfs á sviði öryggis- og varnarmála á Íslandi. Þátttakendur fá innsýn í stefnumótun, skipulag og framkvæmd málaflokksins auk þess sem farið er í skoðunarferðir um öryggissvæðið í Keflavík og í heimsókn til Landhelgisgæslunnar og embættis ríkislögreglustjóra.

Government Offices of Iceland published this content on April 22, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on April 22, 2026 at 14:47 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]