Government Offices of Iceland

06/08/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/08/2026 05:55

Samstarf um að vernda ímynd Íslands

Samkomulag um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland/Iceland hefur verið undirritað. Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu vara og þjónustu á erlendum mörkuðum. Íslandsstofa mun hafa umsjón með vöktun landaheitisins ásamt því að annast verkefnastjórn á samstarfinu.

"Það er Íslandi mjög mikilvægt að við verndum áfram okkar dýrmæta landaheiti sem Ísland er og tryggjum að það sé ekki misnotað. Ég fagna því að aðilar sameinist nú um að byggja áfram á þeirri góðu vinnu sem þegar hefur verið unnin á þessu sviði. Ég er þess fullviss að samstarf atvinnulífs og stjórnvalda muni efla enn frekar vernd og vöktun landaheitisins Ísland og þar með hagsmuni íslensks atvinnulífs."
segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.

Samkomulagið hefur verið undirritað af fulltrúum utanríkisráðuneytisins, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Samtaka atvinnulífsins, Hugverkastofunnar, Icelandic Trademark Holding ehf. og Íslandsstofu. Með samkomulaginu verður til sameiginlegt verklag til að fylgjast með notkun landaheitisins erlendis og bregðast við þegar notkunin kann að ganga gegn hagsmunum íslensks útflutnings.

"Orðspor Íslands er afar dýrmætt fyrir útflutningsgreinarnar okkar og ekki síst fyrir skapandi greinar og menningartengdan útflutning. Við höfum staðið í töluverðri baráttu um rétt íslenskra fyrirtækja til að kenna sig við landið en slík upprunatenging er nú á tímum sérlega mikilvæg," segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. "Okkar saga hefur verið öðrum þjóðum innblástur og því hefur Ísland verið leiðandi í umræðu um aukna vernd fyrir landaheiti innan alþjóðlega vörumerkjakerfisins. Það er því mikið gleðiefni að stjórnvöld og atvinnulíf taki nú höndum saman um að standa skipulega og markvisst að verndun og vöktun landaheitisins á alþjóðamarkaði."

Samstarfið byggir meðal annars á þeirri reynslu sem íslensk stjórnvöld hafa aflað í langvarandi vörumerkjadeilu við bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods, þar sem niðurstaðan varð Íslandi í hag og undirstrikaði mikilvægi þess að standa vörð um landaheitið Ísland/Iceland á erlendum mörkuðum.

Mikilvæg hagsmunagæsla

Með samkomulaginu verður starfrækt fagráð með fulltrúum aðila samstarfsins. Hlutverk fagráðsins er að móta verklag, veita faglegan stuðning og gæta hagsmuna íslensks útflutnings. Samhliða hinu formlega samstarfi um vöktun munu stjórnvöld áfram beita sér á alþjóðavettvangi fyrir því að landaheiti verði almennt ekki einkavædd í vörumerkjarétti.

Vöktun fer annars vegar fram með vöktun vörumerkjaskráninga erlendis sem innihalda Ísland/Iceland eða tengd heiti og hins vegar með vefgátt á heimasíðu Íslandsstofu þar sem almenningur, fyrirtæki og stofnanir geta sent inn ábendingar um mögulega misnotkun landaheitisins erlendis.

Þegar mál kemur upp, hvort sem það er vegna vöktunar eða ábendingar, verður metið hvort ástæða sé til að bregðast við og með hvaða hætti. Ef tilefni þykir til verður umsækjanda eða notanda sent formlegt erindi þar sem óskað er skýringa á tengingu við íslenskan uppruna. Ef notkun telst ganga gegn hagsmunum íslensks útflutnings geta aðilar samkomulagsins gripið til frekari aðgerða í samræmi við sameiginlegt verklag. Í því felst að upplýsa þá sem hagsmuna hafa að gæta af því að verjast misnotkuninni svo þeir geti fylgt málinu eftir með viðeigandi hætti. Með samstarfinu og fyrstu aðgerðum vill samstarfshópurinn hins vegar stöðva slík mál á fyrstu stigum og þannig minnka þann kostnað sem ella þarf að fara í að verjast.

Vefgátt ábendinga á íslensku og ensku má finna á heimasíðu Íslandsstofu:

Ábendingar um misnotkun landaheitisins Iceland / Ísland

Reporting on misuse of the country name Iceland

Government Offices of Iceland published this content on June 08, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 08, 2026 at 11:55 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]