Government Offices of Iceland

05/20/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/20/2026 04:49

Samkomulag undirritað við Slóveníu vegna Uppbyggingarsjóðs EES

Samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Slóveníu hins vegar, var undirritað í gær. Helga Hauksdóttir sendiherra Íslands gagnvart Slóveníu undirritaði samkomulagið fyrir hönd Íslands.

Með undirritun samkomulagsins er formlegt samstarf um nýtt sjóðstímabil hafið og lagður grunnur að verkefnum sem ætlað er að styðja við samfélagslega og efnahagslega þróun í Slóveníu á komandi árum.

Greiðslur í Uppbyggingarsjóð EES eru hluti af skuldbindingum EES-samningsins, en markmið sjóðsins er að draga úr efnahagslegu og félagslegu misræmi innan Evrópska efnahagssvæðisins og styrkja tvíhliða tengsl milli gjafaríkjanna þriggja og þeirra fimmtán aðildarríkja Evrópusambandsins sem njóta stuðnings úr sjóðnum. Með undirritun samkomulagsins hefst undirbúningur að framkvæmd og úthlutun fjármagns til verkefna í Slóveníu á nýju tímabili.

Samstarf Íslands og Slóveníu á vettvangi Uppbyggingarsjóðs EES byggir á traustum grunni sem mótaður hefur verið á fyrri sjóðstímabilum, meðal annars á sviðum menntunar, rannsókna, umhverfismála og endurnýjanlegrar orku. Verkefnin hafa stuðlað að auknum faglegum tengslum og þekkingarmiðlun milli stofnana og sérfræðinga í ríkjunum tveimur.

Government Offices of Iceland published this content on May 20, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on May 20, 2026 at 10:49 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]