03/25/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/25/2026 08:49
Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, fundaði með Sibi George, skrifstofustjóra málefna Evrópu í indverska utanríkisráðuneytinu, á mánudaginn 23. mars. Fundur þeirra var hluti af reglulegu samráði ríkjanna tveggja í utanríkismálum og fór fundurinn fram í Reykjavík að þessu sinni.
Á fundi þeirra var farið yfir margt sem snertir tvíhliða samskipti ríkjanna tveggja svo sem framkvæmd fríverslunarsamnings Indlands við EFTA-ríkin sem kom til framkvæmdar á síðasta ári. Sömuleiðis var farið yfir samstarf ríkjanna í jarðhitamálum og fiskveiðum. Þá var líka rætt samstarf Íslands og Índlands á alþjóðavettvangi og í alþjóðastofnunum, þ.á m. í Sameinuðu þjóðunum.
Samskipti Íslands við Indland hafa aukist til muna undanfarin ár samhliða samningaviðræðum um fyrrnefndan fríverslunarsamning og hefur nokkuð verið um fjárfestingaríslenskra fyrirtækja á indverskri grundu eftir að hann tók gildi. Búist er við því að þau bönd þéttist enn næstu árin.