Government Offices of Iceland

02/06/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/06/2026 06:23

Þorgerður Katrín ræddi við utanríkisráðherra Tyrklands

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í gær símafund með Hakan Fidan utanríkisráðherra Tyrklands. Ráðherrarnir ræddu sameiginleg hagsmunamál sem og vaxandi tvíhliða samstarf ríkjanna á alþjóðasviðinu.

"Ég þakkaði honum fyrir þann áhuga sem tyrknesk stjórnvöld hafa sýnt Íslandi og norðurslóðum að undanförnu. Þjóðir okkar eiga í góðum tvíhliða samskiptum og við erum auðvitað bandamenn til áratuga í Atlantshafsbandalaginu," segir Þorgerður Katrín. "Þá greindi utanríkisráðherrann mér frá áformum stjórnvalda í Tyrklandi um að koma á fót sendiráði hér á Íslandi síðar á þessu ári, sem mér finnst auðvitað mikil gleðitíðindi."

Þá voru málefni Gaza, Úkraínu og Grænlands sömuleiðis til umræðu á símafundi ráðherranna.

Government Offices of Iceland published this content on February 06, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on February 06, 2026 at 12:23 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]