06/19/2026 | Press release | Archived content
Tvö íslensk fyrirtæki, Varist og Jakar/Ísar, taka þátt í öryggis- og varnarmálasýningunni Eurosatory sem fer fram í París þessa vikuna ásamt fulltrúum Íslandsstofu. Sýningin er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum og laðar að þúsundir fyrirtækja, fultrúa stjórnvalda, hermálayfirvalda og sérfræðinga á sviði varnar- og öryggismála.
Varist er íslenskt hugbúnaðar- og netöryggisfyrirtæki sem þróar lausnir gegn netógnum og vírusum. Lausnir fyrirtækisins eru notaðar af stórum alþjóðlegum tæknifyrirtækjum og skanna hundruð milljarða skráa á hverjum degi.
Jakar, sem starfar undir vörumerkinu Ísar, hannar og framleiðir sérhæfð ofurhreyfanleg ökutæki fyrir erfiðar aðstæður. Fyrirtækið sameinar íslenska hönnun og verkfræði við þróun farartækja sem geta nýst meðal annars við öryggis-, björgunar- og varnarmálaverkefni.
Varnarmálafulltrúi sendiráðsins fundaði með hópnum ásamt varnarmálafulltrúum Frakklands gagnvart Íslandi, Thomas Secher og Bruno Costanzo, um tækifæri á franska markaðnum.
Þátttaka fyrirtækjanna á Eurosatory undirstrikar vaxandi sýnileika íslenskrar tækni og nýsköpunar með tvíþætt notagildi á alþjóðlegum markaði fyrir öryggis- og varnarmálalausnir.
Sýningin stendur yfir dagana 15.-19. júní í Paris Nord Villepinte sýningarhöllinni.