06/09/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/09/2026 10:17
Alþingi samþykkti í dag frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Lögin taka gildi 1. desember. Frumvarpið tók breytingum í meðförum Alþingis og lagði ráðuneytið meðal annars til breytingar þess efnis að kveðið yrði skýrt á um að fjölskyldur með börn yrðu vistaðar í sérstöku fjölskylduhúsnæði. Að auki komu breytingartillögur frá allsherjar-og menntamálanefnd.
Brottfararstöð fyrir einstaklinga og fjölskylduúrræðið verða hvorki í sama húsi né á sama stað. Leit sérfræðinga í ráðuneytinu að hentugu húsnæði undir hvoru tveggja stendur yfir og verður kynnt þegar staðsetning liggur fyrir.
Eingöngu verður heimilt að vista fólk á brottfararstöð þegar öll önnur vægari úrræði hafa verið reynd eða metin ófullnægjandi. Þá verða fylgdarlaus börn ekki vistuð á brottfararstöð.
Ef horft er til meðaltals síðustu fjögurra ára má varlega gera ráð fyrir að um átta til tíu fjölskyldur verði vistuð í fjölskylduúrræðinu á ári hverju, miðað við tölur frá heimferðar-og fylgdardeild ríkislögreglustjóra. Erfitt er þó að áætla nákvæman fjölda, þar sem málaflokkurinn einkennist af ytri þáttum sem stjórnvöld hafa takmörkuð áhrif á.
Til að mynda hefði engin fjölskylda þurft að dvelja í fjölskylduúrræðinu fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við tölur heimferðar-og fylgdardeildar ríkislögreglustjóra.
"Það er skiljanlegt að þetta mál veki upp tilfinningar. Rík áhersla var lögð á meðalhóf, um að vega mannréttindaskuldbindingar til móts við aðrar skyldur stjórnvalda um stjórn á útlendingamálum. Vistun ábrottfararstöð er ávallt lokaúrræði og aðeins beitt þegar engin samstarfsvilji er fyrir hendi og vægari úrræði duga ekki. Það er hins vegar ekki tæk leið í útlendingamálum að stjórnvöld geti ekki framfylgt ákvörðunum sínum gagnvart því fólki sem ekki virðir niðurstöðu stjórnvalda," segir dómsmálaráðherra Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Hver fjölskylda verður alla jafnan ekki vistuð lengur en þrjá daga í fjölskylduúrræðinu og aldrei lengur en níu daga alls ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi. Hún hefur til afnota eigið afmarkað rými, tómstundasvæði innan-og utandyra auk salernis-og eldunaraðstöðu.
Lögregl hefur í neyðartilvikum þurft að hafa foreldra eða forráðamenn í sólarhringsvistun til að tryggja nærveru þeirra þegar að fylgd kemur eða fá þá úrskurðaða gæsluvarðhald í fangelsinu á Hólmsheiði. Börnum er þá komið fyrir hjá barnavernd.
Samkvæmt upplýsingum frá heimferðar-og fylgdardeild ríkislögreglustjóra hefur ekki þurft að grípa til þessa úrræðis á þessu ári. Í fyrra var gæsluvarðhaldi tvívegis beitt og sólarhringsvistun einu sinni. Mestur var fjöldinn fyrir tveimur árum þegar sólarhringsvistun fyrir fylgd var beitt níu sinnum.
Í langflestum tilvikum verða þau sem vistuð verða í brottfararstöðinni fólk sem hefur verið synjað um dvöl hér á landi, hafnað öllum öðrum og vægari úrræðum og neitað samstarfi við stjórnvöld um að hlíta ákvörðun um að yfirgefa landið.
Í dag hefur lögregla þurft að fá fólk úrskurðað í gæsluvarðhald á Hólmsheiði sem þykir ekki forsvaranlegt. Ítrekaðar athugasemdir hafa verið gerðar við þetta fyrirkomulag af hálfu úttektarnefndar með Schengen-samstarfinu. Dæmi eru um það í ár að ekki hafi verið óskað eftir gæsluvarðhaldi þar sem vitað var að ekki var til pláss.
Erfitt er að áætla nákvæmlega hver fjöldi þeirra verður sem verða vistaðir á brottfararstöð. Áætlanir gera ráð fyrir allt frá fimm til þrjátíu á hverjum tíma. Ef horft er til tölfræði síðustu ára er líklegt að stórt hlutfall vistmanna verði karlar, flestir á aldrinum 18 til 35 ára. Vistarverur karla og kvenna verða aðskildar.