Arctic Fish Holding AS

03/25/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/25/2026 10:54

Ársskýrsla Arctic Fish 2025

Arctic Fish birti ársskýrslu sína fyrir árið 2025 í dag.
Á árinu 2025 slátraði Arctic Fish 14.791 tonnum af laxi og seldi félagið afurðir fyrir um 13 milljarða.
"Árið 2025 var metár hjá Arctic Fish á nokkrum lykilsviðum. Heildarslátrunin nam 14.791 tonni, sem er 39% aukning frá fyrra ári og 2.913 tonnum meira en fyrra met fyrirtækisins.
Frá því að Arctic Fish slátraði sínum fyrsta laxi árið 2019 hefur félagið slátrað samtals 68.140 tonnum. Á rúmum áratug höfum við byggt upp eitt stærsta fyrirtækið á Vestfjörðum og þannig lagt mikið af mörkum til uppbyggingar svæðisins. Samhliða starfsemi annarra laxeldisfyrirtækja á svæðinu hefur rekstur félagsins stutt við sterkari fjárhag sveitarfélaga, skapað störf og aukið efnahagsumsvif víða um Vestfirði."
- Sagði Daníel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish Holding.
Tengil á skýrsluna má finna hér
Arctic Fish Holding AS published this content on March 25, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 25, 2026 at 16:54 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]