Ministry for the Environment, Energy and Climate of Iceland

06/18/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/18/2026 03:16

Ísland og Kólumbía efla jarðhitasamstarf

18. júní 2026 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ísland og Kólumbía efla jarðhitasamstarf

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, Irene Vélez Torres, settur ráðherra umhverfis- og sjálfbærnimála, og Edwin Palma Egea, námu- og orkumálaráðherra Kólumbíu, hafa undirritað viljayfirlýsingu um að efla samstarf á sviði jarðhitamála.

Með lýsingunni vilja ríkin leggja grunn að samstarfi sem byggir á miðlun þekkingar á uppbyggingu, rannsóknum og þróun sameiginlegra verkefna sem stuðla að sjálfbærri nýtingu jarðhitaauðlinda, auk þess að styðja við loftslags- og sjálfbærnimarkmið Íslands og Kólumbíu. Þá er áhersla lögð á leiðandi stöðu Íslands á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, með áherslu á jarðhita til raforkuframleiðslu og varmanýtingu.

Enn fremur endurspeglar yfirlýsingin vilja ríkjanna til að þróa lausnir á sviði endurnýjanlegrar orku sem styrkja orkuöryggi, stuðla að nýsköpun og styðja réttlát og sjálfbær orkuskipti.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: "Við höfum eflt jarðhitaleit innanlands svo um munar. Við styrkjum jafnframt leiðtogahlutverk Íslands á þessu sviði með því að efla alþjóðlegt samstarf. Kólumbía býr yfir verulegum jarðhitaauðlindum og metnaði í orkuskiptum. Með þessum samningi sameinum við krafta okkar til að efla þekkingu, nýsköpun og sjálfbæra nýtingu jarðhita. Slíkt samstarf getur skilað miklum ávinningi fyrir bæði lönd og stuðlað að hraðari orkuskiptum á heimsvísu."

"Vísindin hafa sýnt okkur hversu brýnt það er að umbreyta bæði orkukerfi okkar og hagkerfi til að bregðast við loftslagsvánni. Þess vegna eru samstarfsverkefni eins og þetta nauðsynleg til að efla getu landsins til að hrinda í framkvæmd réttlátum orkuskiptum. Við segjum af fullri sannfæringu að ekki verður dregið úr kolefnislosun án þess að skilja jarðefnaeldsneyti eftir í jörðu og leggja þess í stað áherslu á að þróa aðrar orkulindir úr iðrum jarðar - hreinni, áreiðanlegri og með lengri framtíðarsýn," segir Irene Vélez Torres, settur ráðherra umhverfis- og sjálfbærnimála.

"Þessi viljayfirlýsing við Ísland er mikilvægt skref í átt að fjölbreyttari orkukerfum og betri nýtingu endurnýjanlegrar auðlindar sem býr yfir gríðarlegum möguleikum fyrir Kólumbíu. Við byggjum upp samstarf við þau ríki sem lengst hafa náð í orkuskiptum til að hraða þróun nýrrar tækni, efla tæknilega getu okkar og umbreyta náttúruauðlindum í tækifæri sem bæta lífsgæði samfélaga okkar. Ísland er leiðandi á heimsvísu í nýtingu jarðhitaorku og leggur nú til sérþekkingu sína til að styrkja orkuöryggi, stuðla að nýsköpun og byggja upp sjálfbærara hagkerfi," segir Edwin Palma Egea, námu- og orkumálaráðherra.

Viljayfirlýsingunni er ætlað að opna á samstarfsmöguleika opinberra stofnana ríkjanna og, eftir því sem við á, auðvelda tengsl milli opinberra aðila, einkafyrirtækja, rannsóknastofnana og annarra sem koma að þróun jarðhitalausna. Yfirlýsingin tekur m.a. til rannsókna og sjálfbærrar nýtingar jarðhitaauðlinda til raforkuframleiðslu og beinnar varmanýtingar; miðlunar þekkingar, rannsókna, nýsköpunar og tækniþróunar, auk aðstoðar við að greina og þróa tilraunaverkefni á sviði jarðhita í Kólumbíu.

Irene Vélez Torres, settur umhverfis- og sjálfbærnimálaráðherra Kólumbíu.

Jóhann Páll segir Ísland styrkja leiðtogahlutverk sitt á sviði jarðhita með því að efla alþjóðlegt samstarf.

Efnisorð

Til baka
Ministry for the Environment, Energy and Climate of Iceland published this content on June 18, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 18, 2026 at 09:16 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]