05/07/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/07/2026 10:48
Metþátttaka var á nýsköpunardegi hins opinbera sem Fjársýslan hélt í gær. Þema dagsins var heildstæðar umbætur í opinberum rekstri, með sérstakri áherslu á hvernig nýsköpun og markviss innkaup geta stuðlað að betri þjónustu við almenning og atvinnulíf. Nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2026 voru jafnframt veitt í fjórum flokkum.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði í setningarávarpi sínu áherslu á mikilvægi nýsköpunar í opinberum rekstri og sagði hana vera eitt af lykiláherslusviðum stjórnvalda til að ná fram betri árangri í þjónustu og nýtingu fjármuna. "Opinber nýsköpun er áherslusvið sem við viljum efla og byggja upp markvissan stuðning við," sagði ráðherra.
Hessel van Oorschot, forstöðumaður hollenska samstarfsvettvangsins SiR Intergov, hélt lykilerindi dagsins. Þar fjallaði hann um mikilvægi þess að greina áskorunina sem þarf að leysa í stað þess að skilgreina útfærsluna of nákvæmlega í upphafi. Með þeirri nálgun skapist svigrúm fyrir markaðinn til að þróa skapandi og áhrifaríkari lausnir.
Þá kynnti Sigurjón Einar Þráinsson, sviðsstjóri umbóta- og þróunarsviðs Fjársýslunnar, þróun verkefnisins "Að kenna gömlum hundi að hjóla", þar sem fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins, Orrinn, hefur verið þróað áfram með áherslu á stafrænar lausnir og aukna sjálfvirkni. Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi við nýsköpunarfyrirtæki á fjártæknisviði og skapar ný tækifæri til hagræðingar og bættrar þjónustu.
Loks fjallaði Anna Sigríður Íslind, prófessor við Háskólann í Reykjavík, um reynslu úr rannsókna- og þróunarverkefnum á sviði heilbrigðis- og velferðarmála og lagði áherslu á mikilvægi þess að samþætta innkaup og innleiðingu við þróunarferli nýsköpunar frá upphafi.
Nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2026 voru afhent í fjórum flokkum: