06/11/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/11/2026 08:52
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í fyrradag þátt í leiðtogafundi NB8-ríkjahópsins í Tallinn í Eistlandi ásamt forsætisráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja þar sem sjónum var aðallega beint að alvarlegri og viðvarandi ógn Rússa á öryggisumhverfið í norðanverðri Evrópu og stöðu mála í Úkraínu. Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti var sérlegur gestur fundarins í Tallinn og Emmanuel Macron Frakklandsforseti tók þátt í lokuðum öryggisfundi með forsætisráðherrunum átta um fjarfundarbúnað, þar sem leiðtogarnir réðu ráðum sínum um aðkomu Evrópuríkjanna í Úkraínustríðinu.
Á fundi ráðherranna með Frakklandsforseta voru öryggi og varnir Eystrasaltssvæðisins og á Norðurslóðum til umræðu, með sérstaka áherslu á tíðari drónaatvik og leiðir til að bregðast við þróun mála með skjótum og samhæfðum hætti. Þá var rætt um stuðning Evrópuríkja við varnarbaráttu Úkraínu, þann mikla herstyrk sem Úkraína hefur yfir að ráða og þann mikla árangur sem þjóðin hefur náð á allra síðustu misserum með stórefldum varnariðnaði og framleiðslu á hernaðardrónum. Var sjónum einnig beint að skuggaflotanum og árangri af refsiaðgerðum gegn Rússlandi.
Selenskí Úkraínuforseti mætti til Tallinn eftir fund sinn í Lundúnum með leiðtogum E3-ríkjahópsins svokallaða sem samanstendur af Frakklandi, Bretlandi og Þýskalandi. Á fundi sínum með forsætisráðherrum NB8-ríkjanna, sem eru þær þjóðir sem standa hvað styrkast að baki Úkraínumönnum, gafst færi á að ræða stöðuna á vígvellinum, horfur á vopnahléi og það mikilvæga hlutverk sem Úkraína leikur í öryggisumhverfi Evrópu.
Í sameiginlegri yfirlýsingu NB8 og Úkraínu á fundinum kemur fram að aðgerðir Rússa hafi breytt öryggisumhverfi Evrópu í grundvallaratriðum og að Rússar séu helsta, beina langtímaógnin við öryggi Evró-Atlantshafssvæðisins. Aðgerðir Rússa í Úkraínu eru fordæmdar harðlega, ekki síst nýlegar árásir sem beint sé gegn saklausum borgurum í Úkraínu. Leiðtogarnir árétta samstöðu sína með úkraínsku þjóðinni og lýsa yfir fullum stuðningi við endurtekið ákall Úkraínuforseta til Rússlandsstjórnar um að binda endi á stríðið með samningum.
Á NB8 leiðtogafundinum beindu forsætisráðherrarnir líka sjónum sínum að málefnum gervigreindar og samkeppnishæfni og ákváðu að efla samstarf ríkjanna á því sviði á næstu misserum.
Sameiginleg yfirlýsing leiðtoga NB8-ríkjanna (á ensku)
Sameiginleg yfirlýsing leiðtoga NB8-ríkjanna og Úkraínu (á ensku)