03/10/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/10/2026 08:18
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra heldur til Washington D.C. í dag til að eiga þar fundi um tvíhliða samband Íslands og Bandaríkjanna og stöðu alþjóðamála.
Utanríkisráðherra hittir að máli Christopher Landau, varautanríkisráðherra, í bandaríska utanríkisráðuneytinu á morgun, þar sem pólitísk samskipti ríkjanna og alþjóðamál verða í brennidepli. Þá fundar Þorgerður Katrín í varnarmálaráðuneytinu, með Elbridge Colby aðstoðarvarnarmálaráðherra, og í kjölfarið fer hún til fundar við Jeff Goettman, varautanríkisviðskiptafulltrúa Bandaríkjanna.
Þessu til viðbótar kemur utanríkisráðherra í ferð sinni til Washington D.C. til með að hitta þingmenn sem sæti eiga í öldungadeild Bandaríkjaþings.