Government Offices of Iceland

06/04/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/04/2026 07:23

Skýrsla um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hélt í dag opnunarerindi á málstofu Í Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi. Á málstofunni kynntu þau Torfi Jóhannesson og Ásdís Hlökk Theodórsdóttir nýja skýrslu sem unnin var fyrir LBHÍ skv. samstarfssamningi við atvinnuvegaráðuneytið. Var málstofan haldin í starfsstöð skólans á Hvanneyri.

Skýrslan fjallar um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi og þróun regluverks. Einnig er gerður samanburður við önnur Norðurlönd, ESB og Bretland á eignarhaldi landbúnaðarlands.

Í skýrslunni eru að auki lagðar fram tillögur um hvernig tryggja megi sjálfbæra nýtingu landbúnaðarlands, fæðuöryggi og byggð í dreifbýli.

Í skýrslunni kemur eftirfarandi meðal annars fram:

  • Mikill hluti lögbýla á Íslandi er ekki í virkri landbúnaðarnotkun. Af tæplega 6.800 lögbýlum eru aðeins um 2.400 í skráðum landbúnaðartengdum rekstri og aðeins um 1.500 þeirra fá landgreiðslur. Um 13% lögbýla eru skráð í eyði og mörg eru í eigu dánarbúa eða mjög margra eigenda.
  • Íslenskt regluverk er tiltölulega frjálslegt miðað við mörg nágrannalönd. Jarðalög fólu áður í sér víðtækt eftirlit með jarðakaupum, búsetu og notkun lands en með nýjum jarðalögum árið 2004 voru flestar takmarkanir felldar niður. Árið 2020 voru sett inn ákvæði til að takmarka jarðasöfnun, leyfi ráðherra þarf til jarðakaupa ef aðilar eiga fyrir fleiri en fimm jarðir eða yfir 1.500 hektara lands, auk nokkurra fleiri skilyrða í sama tilgangi.
  • Svigrúm er innan EES-reglna til að herða reglur um eignarhald og nýtingu landbúnaðarlands svo lengi sem reglurnar byggja á almannahagsmunum og mismuni ekki eftir þjóðerni.
  • Mikil áhersla er lögð á vernd ræktunarlands. Ný flokkun landbúnaðarlands sýnir að um 486 þúsund hektarar á Íslandi teljast gott eða mjög gott ræktunarland, en aðeins ríflega 90 þúsund hektarar eru nýttir til ræktunar í dag. Skýrslan bendir á að skortur sé á samræmdum upplýsingum um raunverulega nýtingu, stærð og staðsetningu ræktanlegs lands og að þessi skortur á upplýsingum torveldi stefnumótun um fæðuöryggi og vernd lands.
  • Í samanburði við önnur lönd kemur fram að Danmörk, Noregur og Svíþjóð beita mun virkari stjórntækjum. Þar eru leyfiskerfi fyrir jarðakaup, búsetu- eða ábúðarskyldu, takmarkanir á sameign og reglur eru um hversu lengi dánarbú mega eiga bújarðir. Noregur er með eitt strangasta kerfið þar sem leyfi þarf fyrir kaupum á flestum bújörðum og áhersla er lögð á búsetu, virka nýtingu og vernd dreifbýlis. Bretland sker sig hins vegar úr með mjög frjálslegt kerfi þar sem markaðurinn ræður mestu, þó með auknu gagnsæi um eignarhald.

Helstu tillögur skýrslunnar eru:

  • Að takmarka eignarhald dánarbúa á lögbýlum og draga úr umfangsmikilli sameign.
  • Bæta skráningu og flokkun lögbýla eftir raunverulegri notkun.
  • Styrkja vernd góðs ræktunarlands.
  • Endurmeta framkvæmd reglna um jarðasöfnun og erlent eignarhald.
  • Efla gagnasöfnun og gagnsæi um eignarhald, nýtingu og skipulag landbúnaðarlands.

Atvinnuvegaráðherra segir að til þess að íslenskur landbúnaður nái að blómstra þurfi skýra stefnu um eignarhald á landbúnaðarlandi og góða yfirsýn um málaflokkinn. Skýrslan muni sannarlega nýtast vel við þá vinnu sem framundan er og nauðsynleg er til að styrkja stoðir íslensks landbúnaðar.

"Í mínum huga er augljóst að við þurfum að hafa skýrt og gagnsætt regluverk sem þjónar þeim með samfélagslegu markmiðum sem við höfum sett okkur. Regluverkið á þannig ekki að loka á eðlileg viðskipti eða draga úr frumkvæði þeirra sem vilja stunda búskap, ferðamennsku eða skapa önnur verðmæti í dreifbýli, heldur veita okkur tiltekna samfélagslega yfirsýn þegar kemur að því að verja þá hagsmuni sem markaðurinn einn og sér gætir ekki alltaf, " sagði ráðherra á málstofunni.

Government Offices of Iceland published this content on June 04, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 04, 2026 at 13:23 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]