Results

Nyi Landsbanki Islands hf.

03/10/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/10/2026 03:54

Þú færð tryggingarnar hjá Landsbankanum

Þau sem eru með heildarpakkann hjá okkur fá endurgreiðslu eftir tjónlaust ár, aðgang að Velferðartorginu okkar, önnur frábær fríðindi og geta þar að auki safnað Aukakrónum.

Upplýsingar um tryggingar eru á vefnum okkar og líka í appinu. Þar er hægt að sjá hvaða kjör bjóðast og ganga frá málunum hratt og örugglega. Þar er líka hægt að panta símtal eða tíma í ráðgjöf.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:

"Við erum stolt og ánægð með að geta boðið viðskiptavinum bankans framúrskarandi tryggingaþjónustu í samvinnu við TM. Nú geta viðskiptavinir fengið alla fjármálaþjónustu á einum stað sem einfaldar lífið og eykur yfirsýn."

Birkir Jóhannsson, forstjóri TM, segir:

"Saman búa Landsbankinn og TM yfir framúrskarandi teymi sem getur veitt viðskiptavinum sínum alhliða fjármálaþjónustu, án hliðstæðu hér á landi. Bankinn getur nú veitt einstaklingum tryggingaráðgjöf og þjónustu, en ef tjón verður mun starfsfólk TM grípa viðskiptavini okkar, með sinni öflugu tjónaþjónustu. Við erum svo sannarlega betri saman."

Nyi Landsbanki Islands hf. published this content on March 10, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 10, 2026 at 09:54 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]