University of Akureyri

08/17/2026 | News release | Distributed by Public on 08/17/2026 06:52

Hvernig leysum við flókin vandamál

Sæunn, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, sótti nú í júlí námskeiðið Problem Solving & Decision Making, sem haldið var á vegum ShipCon í Palermo á Sikiley.

Námskeiðið er meðal annars ætlað skólastjórnendum, kennurum og akademísku starfsfólki sem vill efla færni sína í gagnrýninni hugsun og upplýstri ákvarðanatöku. Meginmarkmið námskeiðsins voru að efla færni þátttakenda í að skilgreina og greina vandamál, finna undirliggjandi orsakir þeirra og meta mögulegar lausnir. Jafnframt var lögð áhersla á að velja og sannreyna bestu lausnina ásamt því að undirbúa innleiðingu, samskipti og eftirfylgni.

Settu upp hugsunarhattana

Mikið var um teymisvinnu á námskeiðinu og meðal hápunkta var að nota sex hugsunarhatta Edward de Bono (e. The Six Thinking Hats) til að greina og leysa vandamál í hópi. Með slíkan hatt á höfði þarf hver einasti einstaklingur að máta sig við mismunandi viðhorf gagnvart vandamálinu. Þau sem setja upp gula hattinn eiga til dæmis að vera bjartsýn og sjá möguleikana á meðan þau með rauða hattinn eiga að bregðast við vandamálinu með tilfinningar að leiðarljósi.

Dvölin á Sikiley var afar lærdómsrík og naut Sæunn þess að kynnast fólki frá fjölmörgum Evrópulöndum. Þannig gafst tækifæri til að mynda tengsl við sérfræðinga í öðrum löndum sem möguleiki er á að vinna með síðar meir. Mörg höfðu jafnframt áhuga á að heimsækja Háskólann á Akureyri.


Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá RHA, stödd á þaki dómkirkjunnar í Palermo.

Beina flugið eykur möguleikana

Sæunn nýtti sér beina flugið frá Akureyri með Transavia til Amsterdam og flaug svo áfram frá meginlandinu. Það er morgunljóst að aukin erlend umsvif um Akureyrarflugvöll nýtast starfsfólki Háskólans á Akureyri vel.

Sæunn naut þess að sækja námskeiðið og að vera á þessari mögnuðu eyju þar sem margir, til dæmis Halldór Kiljan Laxness, hafa fundið fyrir miklum innblæstri í sköpun. Sæunn mælir með því að starfsfólk háskólans nýti sér tækifærið að sækja námskeið í gegnum Erasmus+ mobility til að sækja sér aukna þekkingu og mynda tengsl við aðra skóla.

Námskeiðið var í boði Erasmus+ mobility og var kennt af Angelu Winstanley, félagsráðgjafa með víðtæka reynslu af því að stjórna teymum á flóknum sviðum.

Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá RHA, stödd á þaki dómkirkjunnar í Palermo.

University of Akureyri published this content on August 17, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on August 17, 2026 at 12:52 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]