University of Akureyri

08/14/2026 | News release | Distributed by Public on 08/14/2026 02:31

Er gervigreind framför í þágu almennings

Giorgio Baruchello, prófessor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, var meðal fyrirlesara á ráðstefnu um gervigreind sem haldin var í Palazzo dei Normanni í Palermo á Sikiley í enda júlí.

Giorgio tók þátt í þverfræðilegri umræðu ásamt fræðafólki og sérfræðingum á sviði verkfræði, lögfræði, afbrotafræði, geðlækninga og sálfræði.

Siðfræðin í forgrunni

Ráðstefnan bar yfirskriftina Imagining the Future - Artificial Intelligence at the Service of People, Justice, and the Community sem á íslensku gæti útlagst sem Að ímynda sér framtíðina - gervigreind í þágu fólks, réttlætis og samfélags. Þar var fjallað um hvernig nýta megi gervigreind og aðra tækninýjungar í þágu almennings, opinberra stofnana og réttarkerfisins. Sérstaklega var horft til samfélagsmiðaðra verkefna sem þróuð hafa verið í bænum Carini á Sikiley.

Ráðstefnan fór fram í Pio La Torre-sal Palazzo dei Normanni, þar sem héraðsþing Sikileyjar hefur aðsetur. Mario Giambona, varaformaður þingflokks Demókrataflokksins á héraðsþinginu, ávarpaði ráðstefnuna Fabio Giamporcaro, lögfræðingur og framkvæmdastjóri.

Á ráðstefnunni var lögð áhersla á þau fjölmörgu tækifæri sem felast í gervigreind, en jafnframt mikilvægi þess að þróun og notkun tækninnar taki mið af siðferðilegum meginreglum, mannréttindum og hagsmunum einstaklinga. Slík nálgun sé forsenda þess að gervigreind fylgi í raun og veru framför í þágu samfélagsins.

Mikilvægi þverfaglegrar nálgunar

Giorgio er prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri. Sérsvið hans eru meðal annars stjórnmálaheimspeki, hagnýt siðfræði, gildafræði, mælskufræði og viðskiptasiðfræði. Hann hefur ritað fjölda bóka, fræðigreina og bókarkafla um heimspeki, samfélag, stjórnmál, efnahagsmál og siðfræði. Þátttaka hans í ráðstefnunni endurspeglar mikilvægi heimspekilegrar og siðfræðilegrar umræðu samhliða hraðri þróun gervigreindar.

Giorgio heldur úti bloggsíðu. Áhugasöm geta nálgast hana með því að smella hér.

Hér má nálgast myndbrot frá ráðstefnunni þar sem rætt er stuttlega við þátttakendur. Myndbrotið er á ítölsku.

University of Akureyri published this content on August 14, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on August 14, 2026 at 08:31 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]