04/29/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/29/2026 09:51
Ríkið hefur tryggt sér lóð undir fyrirhugaða Miðstöð um öryggisráðstafanir. Samningur við Reykjavíkurborg um lóð á Hólmsheiðarsvæðinu var undirritaður í gær.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, undirrituðu samninginn og var hann hluti af viðamiklu samkomulagi þar sem ríki og borg skiptust á lóðum samhliða því að ganga frá samningum um stórfellda uppbyggingu íbúða á lóðum og í fasteignum í eigu ríkisins.
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í janúar fyrir frumvarpi sem Inga Sæland, fyrrum félags- og húsnæðismálaráðherra, lét vinna og felur í sér fyrstu heildstæðu lögin um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn hér á landi. Í frumvarpinu er kveðið á um áðurnefnda Miðstöð um öryggisráðstafanir. Lóðin undir starfsemina sem gengið var frá í gær er 9.000 fermetrar að stærð og þar er gert ráð fyrir að rísi um 3.000 fermetra bygging.
"Hér er verið að bregðast við brýnni þörf og skapa heildstæða umgjörð utan um hóp sem kerfið hefur hingað til ekki náð utan um. Eins og staðan er í dag er hvorki til staðar heildstæð lagaumgjörð né samræmt verklag um þjónustu við þá einstaklinga sem brotið hafa alvarlega af sér og þurfa sérhæfða þjónustu. Þessu eru stjórnvöld nú loksins að breyta," segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.