Central Bank of Iceland

10/29/2026 | Press release | Distributed by Public on 10/29/2026 11:16

Einföldun fjármálaeftirlits rædd á málstofu vinnuhóps EFTA um fjármálaþjónustu

Björk Sigurgísladóttir varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits

Björk Sigurgísladóttir varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits og Guðrún Finnborg Þórðardóttir, verkefnastjóri í Seðlabankanum, fluttu erindi á málstofu vinnuhóps EFTA um fjármálaþjónustu þar sem fjallað var um einföldun fjármálaeftirlits og leiðir til að bæta aðgengi að upplýsingum um regluverk á fjármálamarkaði.

Björk fjallaði um nálgun Seðlabanka Íslands að einföldun í fjármálaeftirliti og þau verkefni sem ráðist hefur verið í. Markmiðið er að draga úr flækjustigi regluverks og eftirlits og auka skilvirkni, án þess að það komi niður á viðnámsþrótti fjármálakerfisins eða vernd neytenda og fjárfesta.

Guðrún Finnborg fjallaði um aðgerðir Seðlabankans til að auðvelda aðgengi að upplýsingum um löggjöf og eftirlitsframkvæmd. Meðal þeirra eru öflugri leitarvél á heimasíðunni fyrir löggjöf og tengd málefni, sérstakar síður um nýja og væntanlega löggjöf, fræðslufundir og áhersluverkefni um spurningar og svör. Einnig var kynnt notkun á gervigreind við vöktun á þróun löggjafar á fjármálamarkaði.

Glærur sem Björk og Guðrún studdust við í erindum sínum eru hér:

Simplifying financial supervsion, and, Enhancing access to information on financial regulation

Guðrún Finnborg Þórðardóttir verkefnastjóri
Central Bank of Iceland published this content on October 29, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on October 29, 2026 at 17:16 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]